Færslusafn fyrir May 2006

Hringrás ástarinnar e. Tandra Árdal

Tárin mín
eru einsog sandkorn í stundarglasinu

Snýr enginn glasinu?
Nei
Non

Sandkorn á ströndu, skolast út í hafið
……..Ástin

Þau gufa upp í gufuhvolfið og rignir síðan
……..aftur í hafið

Hví?
Hversvegna gerir þú mér þetta?
Hvað hef ég gert þér?

Mon amour, mon amant soupple — Pourquoi pleurait-il?

Vertu mín, Ísdrottning
Ísdrottning draums hins liðna – ég er inní þér

Komdu hingað, draumur hins liðna
……..ég vill þig
……..þrái þig
……..ég vill bráðna af ást líkt og korn af sandi

Hringur ástarinnar, hinn eilífi hringur
……..hringrásar lífsins

Sem er líka hringrás náttúrunnar

Tandri Árdal

Poeme trouvé - Opus 2 - ljóðið fann Haukur Már Helgason

Ljóð úr Eðalog e. Val Brynjar Antonsson

Ljóðið hér að ofan er fengið úr nýjustu ljóðabók Vals Brynjars Antonssonar, Eðalog, sem var gefin út í seríu Nýhils, Norrænar bókmenntir fyrir skemmstu. Frekar má fræðast um bókina á Nýhil-vefnum, en hana má kaupa með því að heimsækja Ljóðabókaverzlun Nýhils í kjallara Kjörgarðs eða með því að senda tölvupóst á nyhil@nyhil.org.

MySpace er krípí e. K. Silem Mohammed

Og því hef ég komist að þeirri niðurstöðu að MySpace sé krípí.
Þú spyrð þig kannski hvernig ég hafi komist að þessu. Það skal ég segja þér.
Ein stelpa sem ég var að tala við reyndist vera 14 eftir að hafa sagst vera 18.
Ein stelpa sem ég var að tala við reyndist vera 15 eftir að hafa sagst vera 19.
Ef þú ferð á síðuna og það stendur að hún sé 14, vertu rólegur, við höfum ekki misst vitið.

GRRRRRRR, Hallóóóóóóó.
Ég er gluggagægir og skammast mín ekkert.
Þú sem lífvera varst sköpuð til að hljóta ást og umhyggju.
Mér fannst bara að þú ættir að vita að í dag áttu afmæli
og að MySpace er krípí.

Ég er magnaður gaur sem býr og heldur sig í Stokkhólmi, Svíþjóð.
Ég elska tónlist, ketti og ljósmyndun. Ég er áreiðanlegasta manneskja sem ég þekki.
Ég á erfitt með að taka ákvarðanir. Ég hlusta á Bob Dylan. Ég hef uppi áform um að losna við miðvesturríkjahreiminn bráðum.
Það sem ég fatta síst af öllu nokkurn tímann er NASCAR.
Ég hef ekkert á móti því að kynnast nýju fólki eða neitt en MySpace er krípí.

Að kynnast fólki í gegnum MySpace er krípí.
Ég hef komist að því að fólk sem ég hef aldrei hitt veit hver ég er.
Hvað halda þau að gerist?
MySpace er krípí og fullt af myndum þar sem allir eru með síð hár.
Meira að segja ég hef sogast inn til að búa til uppblásinn vin.
Það er þetta sem ég er að meina!

Já, MySpace er krípí þannig.
Ekki get ég ímyndað mér hvernig þeir ætla að fara að því að laga þetta.

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að MySpace sé krípí
og ég kann ekki lengur við það.
Ég ætti ekki að tíma mínum í MySpace. Ég ætti alls ekki að fara á MySpace.
Því að MySpace er krípí! MySpace gerir mig krípí.

MySpace er krípí og skrítið.
Ég skil ekki hvers vegna ég get ekki eytt því.
MySpace er skrítið þannig.

MySpace er krípí og það gerir mig dapran.

Ég hjarta hópsex. MySpace er ógeðslega krípí. Of margir karlmenn.
Kannski eru allir svona að einhverju leyti.
Flutghesticn. Ég stafsetti þetta vitlaust.
Ég ýtti á backspace takkann rétt í þessu. Það sást bara í augnablik.

K. Silem Mohammed

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl

K. Silem Mohammed er einn hinna svokölluðu flarf-skálda, og ljóðið hér að ofan birtist nýlega á bloggi hans, Squirrels in my attic.

Úr Húðlit auðnin e. Kristínu Eiríksdóttur

Draugalestin var eftirminnilegust, segir þú. Um opið hlykkjuðust fótleggir nakinnar konu. Húðflúrað gat á maga mannsins sem hleypti þér um borð, úr gatinu brutust örsmáar beinagrindur. Hann sagði að þú færir inn á eigin ábyrgð. Draugalestin ók þér inní draugagöngin en ekkert gerðist nema kolniðamyrkur. Þú fannst að þú ferðaðist en sást ekkert. Teiknimynd rúllaði nokkra ramma, svo ekkert. En hvar voru þessi göng spyr ég og hvernig komstu útúr þeim aftur. Þú leggur vísifingur að holdinu undir hægra auga, dregur.

Kristín Eiríksdóttir

Ljóðið er úr nýrri bók Kristínar,
Húðlit auðnin, sem kom út í seríu Nýhils, Norrænar bókmenntir, fyrir fáeinum dögum. Bókina má kaupa í Ljóðabókaverzlun Nýhils, í Kjörgarði inn af Smekkleysubúðinni. Frekari upplýsingar um bókina má finna á Nýhil-vefnum.

Rússakosning í Reykjavík e. Örvar Þóreyjarson Smárason

Rússakosning í Reykjavík
ríður mér að fullu.
Sjálfstæðisflokkurinn steikir lík
uppúr sulladrullu.

Örvar Þóreyjarson Smárason

Tekið skal fram að ljóðið, sem ku samkvæmt óáreiðanlegum heimildum vera utankjörfundaratkvæði skáldsins í hnotskurn, er birt án leyfis.

Lórelei e. Heinrich Heine

Ég veit ekki’ af hvers konar völdum
svo viknandi dapur ég er.
Ein saga frá umliðnum öldum
fer ei úr huga mér.

Það húmar og hljóðlega rennur
í hægðum straumlygn Rín.
Hinn ljósgullni bjagtindur brennur,
þar blíðust kvöldsól skín.

Þar efst situr ungmey á gnúpi,
með andlit töfrandi frítt,
og greiðir, í glitklæðahjúpi,
sitt gullhár, furðu sítt.

Með gullkambi’ hún kembir sér lengi
og kveður undrabrag.
Svo voldugt að við stenst engi
er vífsins töfralag.

Heinrich Heine

Þýðing: Steingrímur Thorsteinsson

Goethe-stofnunin í Reykjavík stendur fyrir fyrirlestri um Heinrich Heine í Landsbókasafni Íslands kl. 13.30 í dag, laugardag. Fyrirlesari er Jan-Christoph Hauschild, sem meðal annars hefur skrifað ævisögu Heines. Fyrirlesturinn verður haldinn á þýsku og til meðlestrar verður þýskum texta varpað á sýningartjald. Í lokin verður boðið upp á vínglas með léttu spjalli við fyrirlesarana.

Í tilkynningu segir meðal annars: „Friedrich Nietzsche skrifaði um Heine >>Eitt háfleygasta hugtakið um ljóðskáld gaf mér Heinrich Heine

Poeme trouvé - Opus 1 - ljóðið fann Haukur Már Helgason

Pugilists e. W. Mark Sutherland

Hljóðljóðið Pugilists er eftir kanadíska ljóðskáldið W. Mark Sutherland. Sutherland var meðal gesta á fjölljóðahátíðinni Orðið tónlist sem haldin var á nýliðinni helgi, og átti einn af eftirminnilegri performönsunum. Ljóðið er fengið af disknum Oral cavity, og það má heyra með að smella hér (hægrismellið og veljið ’save target as’ til að vista).

2 ljóð úr …og svo kom nóttin e. Þórdísi Björnsdóttur

27.

Hann sagðist hafa skorið
burt útlimi og saumað fyrir
brjóstholið með nál
til að loka fyrir allt það
sem ekki mátti gleymast

En skugginn minn og ég
fylgdumst með öllu úr fjarska
og sögðum ekki orð

28.

Líkaminn hékk bundinn
og sveiflaðist til og frá
meðan stormurinn gekk yfir
en í baksýn sást mannfuglinn
plokka af sér fjaðrir milli trjánna
meðan ormarnir skriðu innan innum götin
og grófu sig djúpt ofan í holdið

Þórdís Björnsdóttir

Ljóðin hér að ofan eru fengin úr glænýrri ljóðabók Þórdísar,
og svo kom nóttin. Bókin er úr seríu Nýhils, Norrænar bókmenntir, og fæst í öllum helstu bókabúðum, m.a. í Ljóðabókaverzlun Nýhils í Kjörgarði. Þá má kaupa bókina, eða áskrift að seríunni, með því að senda póst á nyhil@nyhil.org. Frekar má fræðast um bókina á Nýhil-vefnum.