Færslusafn fyrir June 2006

… Endurbyggjum Tvíburaturnana í New York … á pizzunni þinni e. Katie Degentesh

Ég er reiðari en þjónn yfir tíu senta þjórfé vegna þess sem gerðist þegar ég sagði elsku hjartans múffunni minni að Tvíburaturnarnir – stóðu hlið við hlið, á meðan starfsliðið og ég fylgdumst með tvíburaturnunum í World … ég nefni þetta verkefni „Að leita að böku en finna bara múffu“. Hvað … Hvað gæti verið betra en heimatilbúin múffa eða smákaka? Tvíburaturnarnir …

Sameinuð stöndum við Bandaríkjunum til dýrðar og fylgjumst með fyrstu giftingargleðimúffu Tvíburaturnanna … Fyrsta hamingjusama hallærislega múffu-moddaranum … Citta Grunnskólinn ætlar að halda sex múffubasara og láta allan ágóðann renna í Tvíburaturnasjóðinn…

Sökudólgarnir á bak við svindlið segja að með hugtakinu „tvíburaturnar“ eigi þeir við Viðskiptamiðstöðina … Þá þurfa þeir að borga með einhverju meiru en bananahýði eða Hostess múffum. …

Hægra megin fengu gestir litríkan múffu fána. … Gapandi af undrun fylgdist hann með tvíburaturnunum hrynja til jarðar á hundruð New Yorka … Velkominn aftur á þurrt land, Kafteinn Múffa. …

Nú, þegar maður spilar þetta eftir múffu áætlun eins og á síðasta ári með einungis fjórar flugvélar … mun gleðjast að heyra að risavaxinn syngjandi Hostess múffa opnaði … strax í eftirleik árásanna á Tvíburaturnanna þann 11. september fannst hálfétin árstíðamúffa á bringunni á honum … Síðan, eftir mynd af krúttlegu geimveruvélmenni í gervi hvolps sem gæðir sér á múffu, stökk íkorni upp í fangið á mér og fékk sér bita af múffunni sem krýndi bygginguna og býður upp á – bauð upp á – útsýni á báða tvíburaturnanna…

Tvíburaturnarnir í dag í … Nafn: sykur ástar múffa þann 14. september. Boxin – sem í reynd eru appelsínugul – Loftsýn á rústir tvíburaturnanna. SÖNNUNARGÖGN LÍSU: MÚFFUR LÍSU.

Því að djúpt við hjartarætur þeirra ungu og gömlu, er ekki alltaf auðvelt að finna upp nýjungar fyrir hina ljúffengu múffu … Dapurlegt að sjá tvíburaturnana, samt… birt kl. 12:28 Hvarta tal’um, Willis? Kafteinn Múffa snýr aftur! Bændurnir fagna. …

Tvíburaturnarnir voru lögmæt skotmörk, þeir studdu við bakið á bandarískum efnahags … að endurskíra Bombay Mumbai er ekki birtingarmynd öfgastefnu, múffa … padda, sykurstöng, teiknibóla, vínber x2, xs tyggjókúlusjálfsali, hjartastrengir, múffa … golf köntrí engill heldur tvíburaturnum …

Síða 1. „Trúfrelsi, málfrelsi, persónufrelsi vernd gegn fangelsun án dóms og laga; og réttarhöld með kviðdómi …

… á valdatíma Carter-stjórnarinnar, hélt annar nemandi fram, stóðu Bandaríkin frammi fyrir „Gestatökunni í Íran“. „Það hlýtur að hafa verið hrafnasparkið á múffunni … „Ég hef enga eina sérstaka manneskju í huga, Múffan mín. … Hryðjuverkamenn réðust á Tvíburaturnanna í New York borg. … 14:30 Nokkrir félagar mínir í stétt listamanna gáfu mér afmælismúffu. 17:30 … Ég kveiki á sjónvarpinu og hrekk við þegar ég sé Tvíburaturnana á kafi í eðlilegum umferðarstraumi á götunum kl. 06:45 Þeir eru að segja eitthvað um að flugvélar hafi klesst á tvíburaturnana - - og flugvélin hitti … þyrlu bankaræningja sem festist í vef á milli tvíburaturnanna … sérstöku kökurnar hans, en þeir áttu bara Súkkulaðimúffumix Denna Dæmalausa …

Katie Degentesh

Þýð: Eiríkur Örn Norðdahl

Harold Pinter og (hed) p.e. – ólíkir boðberar jingóisma e. Kára Pál Óskarsson

Um þessar mundir standa yfir sýningar á leikritinu Fagnaði eftir Harold Pinter. Eins og öllum er kunnugt vann hann nóbelsverðlaunin í fyrra og flutti af því tilefni magnað ávarp þar sem hann úthúðaði leiðtogum Bandaríkjanna og Bretlands fyrir hernaðarbrölt þeirra. Það er á almanna vitorði að Pinter er vinstrisinnaður aðgerðasinni sem hefur í marga áratugi beitt sér í þágu friðar og mannréttinda um heim allan. Það sem ekki öllum er kunnugt um, er þetta litla ljóð sem hann orti skömmu eftir lok fyrri flóabardagans árið 1991:

Hve gamall varð hann Adam (aldrei hugsa, aldrei)

Furðu sætir hve lífsseigir sumir af frumfeðrum mannkyns urðu. Metúsalem varð til að mynda nærri 1000 ára eða nánar tiltekið 969 ára, Adam 930, Set 912, Enos 905 o.s.frv. Þetta olli vísum mönnum hugarangri alveg þangað til þeir urðu enn vísari og uppgötvuðu að á elstu tímum gamlatestamentisins voru ár ekki 365 dagar eins og nú. Nei á dögum þessara merku manna var tíminn talin í tunglmánuðum og var þá hver tunglmánuður 30 dagar og talinn sem eitt ár og viti menn, Metúsalem varð ekki nema 78 ára og 9 mánaða. Áhugasamir geta svo dundað sér við að reikna aldur þeirra Adams, Sets, Enosar o.s.frv., hafi þeir nennu til.

Aparass (aldrei segja afsakið)

Homo Sapiens hefur verið til í sirka 200.000 ár (slíkt er þó enn ómögulegt að fullyrða nokkuð um), Back gammon var fundið upp fyrir kannski 6000 árum, Jésú fæddist að öllum líkindum í Betlehem fyrir 2006 árum, Norðmenn fluttu svo sennilega til íslands fyrir 1100 árum. Hellingur af árum, tölum sem engum segja neitt nema kannski stjarn-, fornleifa- og sagnfræðingum, fólki sem hefur óendanlegar stærðir og stjarnfræðilegan tíma á skrifborði sínu dag hvern. Breytingar í náttúrunni gerast ofur hægt, oftast svo hægt að á meðan líða margar kynslóðir manna undir lok sín og því enginn sem getur sagt; Hey! Þessi burkni er kominn með munn!

Til ungdómsins e. Músifölsk

Árið 2005 ákváðu þeir Jón Örn Loðmfjörð og Sölvi Úlfsson að láta ekki vankunnáttu stöðva sig í tónlistarsköpun. Þeir stofnuðu hljómsveit sem hlaut nafnið Músífölsk. Slagorð sveitarinnar varð „Tónlist, afsakið orðbragðið!“. Stuttu seinna gekk raftónlistarmaðurinn Lime, öðru nafni Emil Hjörvar Petersen, í hljómsveitina. Hófu þremenningarnir að skapa tón- og hljóðverk úr öllum þeim fyrirbærum sem hendi voru næst; allt frá dagblöðum, glerflöskum, didgeridoo, klarinetti, kínverskri fiðlu upp í hljóðgervla og tölvur.

Meðlimir Músífalskrar höfðu þó áhuga á fleiru en tónlistarsköpun. Emil hafði til dæmis gaman af því að sýna meðlimum hljómsveitarinnar ljóð sín. Jón öfundaði hann af hæfileikum hans á því sviðið en gat ekki með nokkru móti keppt við hann. Það var þá sem Jón skrifaði tölvuforritið Dadda. Daddi vinnur úr textaskjölum og býr til úr þeim nýja texta sem án efa eru ljóð.

Ljóðið „Til ungdómsins“ sameinar áhuga sveitarinnar á furðulegum hljóðum og textabrenglun - þar sem ,,hlutir“ einsog bassaklarinett, appelsínflöskur, Nietzsche og Kierkegaard sameinast. Smellið hér til að hlusta á ljóðið (hægrismellið og veljið ’save target as’ til að vista).

Ljósmynd og skuggamynd e. Hauk Ingvarsson

Þau koma úr sjónum og taka sér stöðu á gulhvítri klöpp. Hún hristir höfuðið og dropar slettast á hlæjandi andlit hans. Hann sleikir úr munnvikinu og segir að droparnir séu saltir eins og tár.

Svo leggjast þau á magann og sóla sig.

„Við ættum að eiga mynd af okkur eins og við erum einmitt núna,“ segir hún og rís upp á olnbogana, kallar á strák í fjörunni og biður hann að taka mynd. Þegar þau eru staðinn upp mótar fyrir líkömum þeirra á klöppinni. „Sjáðu,“ segir hún og bendir aftur fyrir sig „fjórir skuggar.“ Þau hlæja. Strákurinn skyggnist í kringum sig áður en hann smellir af. Út úr vélinni kemur hvítt spjald eins og tunga. Þau fylgjast með sjálfum sér koma í ljós á spjaldinu. Svo dorma þau, fljúgast á, kyssast djúpt, drepa tímann og busla í sjónum. Þegar þau ætla að snúa heim sjá þau að andlit þeirra eru gufuð upp.

Eftir standa tveir sviplausir skuggar.

Haukur Ingvarsson

Bleikur 19. júní - ljóðið fann Eiríkur Örn Norðdahl

Lofsöngur e. Magnús Þór Snæbjörnsson

Words mean things (Blee bloo blar blog) e. K. Silem Mohammad

Tíu þúsund tregawött mæla öllum sínum harmi með ljóðinu Words mean things (Blee bloo blar blog) eftir bandaríska ljóðskáldið K. Silem Mohammad. Texta ljóðsins má lesa í vefritinu Kultureflash með því að smella hér, og stórkostlegan upplestur skáldsins á Pennsound má heyra með því að smella hér (hægrismellið og veljið ’save target as’ til að vista). Ljóðið er úr bókinni Deer head nation, og Mohammad er eitt hinna svonefndu Flarf-skálda.

Ljóð úr Roða e. Ófeig Sigurðsson

II

Enn erum við daufir
nemar upplýstrar villu
troðandi marvaða
innan hunsaðra marka
dýpkandi spor í eðjuna
í þróun & gáttin
út í heiminn
auga líkamans
meðan allt annað sefur
& bíður.

Allt svo auðvelt
elskulega alhæfing
bjartsýnin lifir
& lifir af
allar sínar flækjur
ríkulegar af
skæru hlýju ljósi.

Svo undurblíð & fersk
hverja andrá
& yndislega aldrei yfirstigin
í ójöfnum leik ofbeldis
frjóum öllum eindum
frá hinsta kjarna
til endimarka alheimsins.

Sundurtætt svo ógreinileg
einum nema
sú sífellda endurtekning
svo spánný alltaf
þokast með slokknandi stjörnum
í átt að uppruna sínum.

Fjarlægðin skiptir engu
þrátt fyrir raun & reynd
aðeins skyndaufir heiglar svartsýnast
í þessari björtu blindu
grotna niður skjálfandi
þola sjálfa sig illa
& heiminn allan.

Ófeigur Sigurðsson

Ljóðið hér að ofan er fengið úr glænýrri ljóðabók Ófeigs, Roði. Bókin er úr seríu Nýhils, Norrænar bókmenntir, og fæst í öllum helstu bókabúðum, m.a. í Ljóðabókaverzlun Nýhils í Kjörgarði. Þá má kaupa bókina, eða áskrift að seríunni, með því að senda póst á nyhil@nyhil.org. Frekar má fræðast um bókina á Nýhil-vefnum