
Færslusafn fyrir August 2006
Hver voru uppáhaldsljóðskáld Íslendinga á öldinni sem leið? Þessu reynir Gísli Sigurðsson fyrrverandi Lesbókarritstjóri að svara með stuttri skoðanakönnun í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um síðustu helgi. Niðurstaðan er álíka fyrirsjáanleg og búast mátti við. Einar Benediktsson er efstur og níu efstu ljóðskáldin eru öll fædd fyrir miðja öldina, Þórarinn Eldjárn (fæddur 1949) þeirra yngstur. Svarendur eru fimmtán og þeirra yngstir eru tveir piltar úr MK. Kíkjum á svör annars þeirra:
„11. Kjartan Gíslason menntaskólanemi úr Menntaskólanum í Kópavogi er líkt og félagi hans, Guðmundur Valur, fulltrúi þeirra ungu. Skoðanir beggja á uppáhaldsskáldum voru fastmótaðar þrátt fyrir ungan aldur.
Kjartan nefndi Einar Benediktsson, Stein Steinarr og Þórarinn Eldjárn. Kjartan er aðeins 18 ára og ugglaust ekki eins kunnur og flestir sem hér svara. En hann var fljótur að komast að niðurstöðu og niðurstaða hans vekur engar sérstakar spurningar.“
Hér hyllum við Youtube vefinn, gjöf stafrænnar tækni til ljóðlistar. Við sjáum myndband við ljóðið Aubade eftir enska skáldið Philip Larkin. Það hefst á orðunum
I work all day, and get half-drunk at night.
Waking at four to soundless dark, I stare.
In time the curtain-edges will grow light.
Allt ljóðið má auðveldlega finna með google-undratækinu.
Búmm búmm búmm búmm,
búmm búmm búmm.
Búmm búmm búmm búmm,
búmm búmm búmm.
S. Baldrick
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl
Hér verða ekki rifjaðar upp magnaðar hrakspár…
ALLUR heimurinn fylgdist með því í beinni útsendingu
á hnattrænu sjónvarpsstöðvunum
þegar Írakar klifruðu upp á Saddam-styttuna í Bagdad
síðdegis á miðvikudag.
Æstur mannfjöldinn stappaði
sigri hrósandi á brotunum
og hausinn var dreginn um borgarstrætin
til að staðfesta fall Saddams
og fólkið fékk útrás fyrir áralangt innibyrgt
hatur og gremju.
Fréttamaður BBC-heimssjónvarpsins sagði þetta minna sig á
fall Berlínarmúrsins
uppreisnina í Prag
og atburðina fyrir framan þinghúsið í Moskvu.
Táknrænir atburðir
heimssöguleg þáttaskil.
Í tómarúminu hófust gripdeildir
samhliða fögnuði fólksins
yfir frelsun sinni.
Bæði hér og erlendis verður hlustandinn
að vera vel á varðbergi
svo að hann blekkist ekki af villuljósi.
Átökin við Saddam Hussein hafa náð tilgangi sínum
á mun skemmri tíma en flestir ætluðu.
Engin þjóð kemst í hálfkvisti við Bandaríkjamenn.
Ingólfur Gíslason
Tregawöttin tíu þúsund liggja í bloggunum þessa dagana og hafa á ráfi sínu m.a. fundið stórfenglegt ljóðablogg finnska ljóðskáldsins Marko Niemi, sem á ljóðið hér að ofan, sem heitir exquisite collage or andre going solo. Smellið á titil færslunnar og rennið músarbendlinum yfir ljóðið. Marko Niemi bloggar öðrum eins meistaraverkum á http://nurotus.blogspot.com.
Viðbót: Ljóðið virðist virka illa hér hjá öðrum en notendum Internet Explorer. Öðrum er bent á að smella hér til að sjá ljóðið í réttri mynd sinni.







