„all those damn poets with their lines“
Richard Hell – Winter Poem
I
Tilfinningar
mínar
gagnvart
fjöldamorðunum
í Rúanda
eru
ljóð.
II
Helstu rímorð
tungunnar eru:
fjöldamorðin í Darfur
fjöldamorðin í Rúanda.
III
Tíminn er eins og
fjöldamorðin í Tétníu
og afétið andlit mitt
til hálfs.
IV
En nú hefur allsherjarþing
ályktað
að fjöldamorð séu
almennt talin
óæskileg.
Skilgreining á fjöldamorði er í viðauka.
V
Karlmenn segja nei!
Við þjóðarmorðum.
VI
Ljudmila finnur ekki
súluna sína
og dansar þess í stað
við herforingjann
sem tárast yfir
að hafa fengið
annars heims
dansmey
VII
Meira að segja
sigurvegararnir
berja konurnar sínar.
VIII
eins og finna má í viðauka.
IX
Ég veit um fólk sem
réttlætir þjóðarmorð,
nauðganir og pyntingar.
Ég játa fáfræði mína:
Ég veit ekki
um neinn
sem réttlætir
þjóðarmorð.
Ég veit um fólk sem
réttlætir þjóðarmorð,
nauðganir og pyntingar.
Ég játa fáfræði
mína.
X
Það vantar oft hina kvenlegu vídd
í fjöldamorð
hvað komast til dæmis margar sprengjur
í píkuna á Britney?
XI
X más bombas en la concha de los Britney!
X más bombas en la concha de los Britney!
X más bombas en la concha de los Britney!
XII
Fjöldamorð eru tungumál ástarinnar
Fjöldamorð má framkvæma í heimahúsi
Aha, ég skil, ég hef oft tekið slátur.
XIII
Ég kann ekki við
að nota börnin
í svona áhættuleik.
Ég er hrædd um að fá
kvartanir.
XVI
Annað fólk er vitlaust, lúserar, með minnimáttarkennd og álíka.
Ég hef sjálf lent í þessu rexi.
Það var þessi óstjórnlega löngun í rassaríðingar.
Mér sýnist á öllu að þú sért hér til að fá útrás fyrir þína minnimáttarkennd.
XV
Rohypnol er þríhyrningsmerkt lyf
notkun þess slævir viðbragðsflýti og eftirtekt.
Notkun þess hefur í för með sér ávanahættu.
Unglingar neyta lyfsins með áfengi.
Neyslan getur haft í för með sér að einstaklingar
fremja ógurlega glæpi þar sem
tilfinningar
eins og meðaumkun
ruglast
en hversu mikið
fer eftir stærð
skammtar
sem og
áfengismagni.
Ógurlega glæpi eins og þjóðarmorð
eða stríðsglæpi.
XVI
Í þjóðarmorðum erum við bestur.
BestIr á ég við.
Þjóðarmorð á lágmarksverði.
Óstöðvandi.
XVII
Aftur að píkunni á Britney.
Ég lít út eins og geimvera eða strumpur með hana á hausnum.
XVIII
Hvað eiga nasistar, Ku Klux Klan og konur sem fara í fóstureyðingu sameiginlegt?
Þau eru öll félagar í leynifélaginu Beinagrindin
Þau eru öll með sér baðherbergi (með sturtu) og sjónvarpi
Þau eru öll búin síma, útvarpi, gervihnattarsjónvarpi og baðherbergi með sturtu
Þau eru öll róandi, kvíðastillandi, krampastillandi og vöðvaslakandi
Þau eru öll varhugaverð og flest erfðabreytt
Þau eru öll saumuð með glitsaumi
Þau eru öll búin einni 40 mm fallbyssu
Þau eru öll velkomin á eigin forsendum
Þau eru öll að leika 22 ára krakka
Þau eru öll fjórtán ára en ekki 10 ára eins og ég óttaðist
Þau eru öll búin að dansa nóg og taka inn alsælupillurnar sínar.
XIX
Rohypnol er ágætis hjálpartæki
til þjóðarnauðgana
Alsælupillurnar þjóna vel
neytendum sínum
í þjóðarorgíu
Ég hef annað hvort rétt fyrir mér
Eða hvað sagði ekki djókurinn
Skilgreining á nauðgun er eftirfarandi:
árás framkvæmd með mjúku vopni
ekki satt
eða hversu mörgum klasasprengjum
er hægt að koma fyrir í píkunni
á Britney að stíga útúr Volkswagen
XX
Tveim frammí
Tveim afturí
og sex milljón í öskubakkann.
XXI
Erin Brockovich
erin
dreki
Sameinuðu þjóðanna
Þetta erindi er í boði
Dar fur
pelsa
og
Paris Hilton
Hún vill vekja athygli á eftirfarandi:
Tilboðin á barnum á Hverfisbarnum frá klukkan 21:00-23:00 verða eftirfarandi:
Stór bjór á 350 kr.
Ávaxta (breezer og Smirnoff ice), 600 kr.
Skot á 350 kr.
Einfaldur í gos á 600 kr.
Tvöfaldur í gos á 1000 kr.
Léttvín á 500 kr.
Kokteill á 1000 kr.
Ykkar, P
XXII
Lögreglan í Ipswich sem rannsakar morð á þremur vændiskonum í borginni hvetur morðingja þeirra til að gefa sig fram. „Þú átt augljóslega við vanda að stríða. Hringdu í mig og við tökumst á við málið,“ sagði yfirmaður rannóknarinnar í ákalli til morðingjans í breskum fjölmiðlum.
Mengistu var ásamt rúmlega sjötíu öðrum ákærður fyrir morð á þúsundum andstæðinga sinna í stjórnartíð marxista og voru allir nema einn sakfelldir fyrir þjóðarmorð.
Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, var í dag jarðsunginn í herskóla landsins í höfuðborginni Santiago.
Hún var dóttir frelsaðra þræla, fædd þann 15. ágúst 1890. Hún lætur eftir sig 554 afkomendur, þar af 75 barnabarnabarnabarnabörn. Heimsmetabók Guinness hafði fyrr á þessu ári sett Elísabetu í efsta sæti á listanum yfir fólk í heimi.
Augustin var ekki á listanum. Þegar maður var lítill lærði maður það að menn deyja en skepnur drepast.
Íslenska ríkið ætlar að leggja fram 220 milljónir króna næstu tvö árin til kaupa á skólamáltíðum fyrir grunnskólabörn í Úganda og Malaví.
XXIII
Hvað hafið þið svosem ort mörg ljóð
gegn fasisma og loftárásum?
Bakað margar smákökusortir
gegn dauðanum?
XXIV
Andalúsía,
nennirðu að ná í næsta stríð?
það er í kælinum,
á milli
hvítlauksins
og
spænsku borgarastyrjaldarinnar
Sankti Lúsía,
færðu mér Andalúsíu
hún er í kælinum
á milli hvítlauksins
og Benítós
XXV
Ég og Jacques Derrida eigum afmæli í dag. Hvað um það.
Hann er djöfullega leiðinlegur.
En segir maður ekki við Derrida?
XXVI
afbyggðu mig, elskan,
afbyggðu strákofana,
afbyggðu jarðsprengjurnar,
afbyggðu tvíburaturnana,
afbyggðu skattframtalið mitt.
XXVII
Viltu pressa persa?
Lítið notuð persapressa,
prinsipissa.
Viltu pressa persa?
Lítið notuð persapressa
prinsipissa,
ég hef fulla trú á að svæfa ljóð
buhuhu
XXVIII
skál
skál
hvað í helvíti eruð þið ekki að drekka?
skál
ég borða aldrei innflytjendur milli mála
það skemmir tennur.
XIX
afsakið á ég að senda þér sápu
árgerð ‘42 austurevrpólsk í húð og hár
hrærðu sandi samanvið
ef olían loðir við langa fingurna
ég skil ekki barnabílstóla
ég er í sturtustraffi
helvítis subbutrunta
XXX
Jólahypnöl og rjúpa eða hryggur
Jólahypnöl vera hryggur
Jólahypnöl og líkamslykt
Jólahypnöl og líkamslykt eftir Þoddngrím Náriðilsson
Eðvarð, Ingólfur og Andrés Önd fara saman í jeppaferð hringinn og skrifa bók um konurnar sem þeir nauðga. Bókin heitir fullu nafni Allrahanda hópferðir - runkaði mér á þjóðvegi 69 yfir jólahypnöl og hvítkálslykt og er eftir Þoddngrím Náriðilssson
XXXI
Að eignast barn
í bílstól
er eins og að ríða í regnstakk
eða tala við konu í gegnum kufl,
þú kemur hvergi fyrir fótunum
og rassinn passar ekki í sætið.
XXXII
Hvort viljiði
líkamslykt, salatlykt
eða hvítkálslykt.
Sjáið hvernig ég geri lítið
úr harmi ykkar með því að nota emótikon
sem minnir helst á öskrandi krakka að
springa úr frekju.
Óþarfi að nudda pólon í sárin.
Bernska mín var hvítkál
kálbögglar.
XXXIII
Britney er víð og rúmar margar sprengjur
nýskilin tvískilin og skilur okkur öll
þaðan kemur hin kvenlega vídd
þaðan koma börnin
þau sem ekki koma frá Afríku.
Afríka er píka heimsins
en það þýðir ekki að mér þyki ekki vænt um þig
Ásgeir H Ingólfsson, Eiríkur Örn Norðdahl, Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, Ingi Björn Guðnason og Ingólfur Gíslason.
Fjöldamorðin ágæt. Mættuð samt klára þetta betur.
– Fundið ljóð úr tölvuskeyti eftir sjálfan mig.