Andvana fæddur e. Bret Hoffmann

Hugsanir mínar hugur minn fastur bak við
óumflýjanlegan deyfðarmúr
bjóddu því birginn, einn á móti einum
kyngdu engum lygum.

Ég get ekki rofið mörk mín
að eilífu fastur í vonleysi
allar hugsanir mínar deyja
áður en þær fæðast.

Tjáning huga míns þjáist
kvalin undir andlegum hlekkjum
aðeins á lífi til að þjóna öðrum
kærir sig ekki um mína pínu
andvana fæddur.

Andvana fæddur, mér hringsnýst allt í huga
ég berst gegn öllu
engin von um að nokkur heyri í mér
engin von um frelsun.

Lifðu aðeins til að þjást
fastur innan í holdsins múr
hve margir lifa, hve margir farast?
munu aldrei ná marki sínu
andvana fæddir.

Ég er dauður áður en ég lifi
opnaðu þig upp á gátt, láttu troða í þig fæðu
ömurlega leið lífsins
sem þeir innræta í hausinn þinn.

Innsæi þaggað áður en það sleppur
lífið látið rotna í helvíti
blindaður af falsaðri von
lútaðu inn í þína andlegu skel.

Ég er andvana fæddur.

Bret HoffmannÞýðing: Ófeigur Sigurðsson.

Þýðing: Ófeigur Sigurðsson.

0 ummæli við “Andvana fæddur e. Bret Hoffmann”


  1. Engin ummæli