Söngur flautunnar e. Óskar Árna Óskarsson

Söngur flautunnar
læðist um húsið - bægir
burt öllu angri

Gul prjónahúfa
birtist og hverfur aftur
á skógarstígnum

Hekla í skýjum
póstkortið í sjoppunni
verður að duga

Hrossin í skjóli
aðeins músarrindill
þolir óveðrið

Á háheiðinni
ryðgað bílhræ með brotin
lestrargleraugu

Óskar Árni Óskarsson
Ljóðið er úr nýrri ljóðabók Óskars, Loftskip.

0 ummæli við “Söngur flautunnar e. Óskar Árna Óskarsson”


  1. Engin ummæli