Ljóðskáldið og rithöfundurinn Haukur Már Helgason var staddur vestur á Ísafirði á dögunum, en þar má einmitt finna nýstandsett stúdíó Úbbarts Tregawatta, Fm 10.000. Eiríkur Örn Norðdahl tók skáldið tali og barst fjölmargt í tal í misspíttmanísku spjallinu. Meðal annars er rætt um ljóðabækur Hauks Más, sem eru orðnar fjórar talsins: Ekkert kvikt - leit að ljóði kom út árið 2000; Eini strákurinn í heiminum sem kunni að telja kom árið 2001; 2004 kom út hjá Nýhil árið 2003 og Rispa jeppa kom út sem hluti af seríunni Norrænar bókmenntir árið 2005. Lítillega er minnst á ljóðamyndbandið Homo activitus sem Haukur gerði fyrir nokkru og má finna með því að smella hér. Þá er lítillega komið inn á nýja skáldsögu Hauks Más, Svavar Pétur & 20. öldin. Þá ræða Eiríkur og Haukur almennt um (ljóð)listina og það að vera listamaður á tímum Landsbankans.
Viðtalið má heyra með því að smella hér (hægrismellið og veljið ’save target as’ til að vista). Það er tilvalið að hlaða þessu niður og setja inn á tónhlöðuna sína. Viðtalið er ein og hálf klukkustund.
0 ummæli við “Úbbart Tregawött: EÖN ræðir við Hauk Má Helgason”