Ljóðstafur Jóns úr Vör veittur um helgina

Guðrún Hannesdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2007 fyrir ljóð sitt, Offors, en Hjörtur Marteinsson og Eiríkur Örn Norðdahl viðurkenningar fyrir sitt ljóðið hvor í árlegri samkeppni um ljóðstafinn. Tilkynnt var um úrslitin og skáldunum afhent verðlaun og viðurkenningar við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi síðdegis á sunnudag.

Um 400 ljóð bárust í samkeppnina að þessu sinni, en rökstuðningur dómnefndar fyrir veitingu ljóðstafsins í ár er svohljóðandi:„Ljóðið Offors lýsir jurt sem sumir kalla illgresi, en er þó matjurt sem runnin er upp í fjarlægum heimshluta nálægt vöggu menningarinnar og fylgt hefur Íslendingum um langan aldur. Mynd þessarar jurtar í ljóðinu er dregin á listrænan hátt sem sækir í íslenska alþýðuhefð. Jafnframt lýsir Offors óstýrilátu eðli rabarbarans og lífsseiglu og býður í lokin upp á fleiri en eina túlkunarleið að hætti margra nútímaljóða.“

„Ljósmynd: Morgunblaðið/Golli“

0 ummæli við “Ljóðstafur Jóns úr Vör veittur um helgina”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni