Ég er Gertrude Stein e. Lars Mikael Raatamaa

Ég er líka Gertrude Stein. Því trúðuð þið ekki!
Hóhó, Billy Bob, þessu trúðirðu ekki
upp á mig. En ég á heimsins fallegustu
slönguskinnstígvél. Og ég keypti þau í Oklahoma City.
Nálægt Cattleman’s Café. Með hráskinnstyrktum sóla.

Híhí Sharon Stone. Hér sérð þú aðra
Gertrude Stein. Á fullri ferð eftir route 666.
Með lögguna á hælunum. Húpp. Fór víst
aðeins of hratt þarna. En, en. Ég sem vil ná
til Monument Valley fyrir myrkur. 200
dollarar. Og þú, þú verður líklega að gista í Kayenta
næturlangt. Í úrannámunum.

Jájáégmeina, ég er reyndar Gertrude Stein ég líka.
Hehe, Miss Richards, Talaðu um fyrir mér. Segðu sannleikann
nú, svona rétt einu sinni. Vissir þú að Louisiana lá
í Missouri. Nja, það gat ég ímyndað mér. En jafnvel þó
ég þyrfti að taka krók á leið mína þá var ég á staðnum þegar
Mississippi fór á kaf. Strax við Hannibal með
hvítu girðingunni. Og low-ridernum. Bajito Onda.

Stórkostlegt. Það er jú ég sem er líka Gertrude
Stein. Vissir þú það fyrir, herra Pitt. Jasvo, jáen,
jáþannigsko. Og ég sem … En það er samt alveg stórkostlegt.
Svo margir Bandaríkjamenn. Í leirnum. Getum við ekki öll verið
Gertrude Stein. Bara í smá stund. Hírr hírr. Í prangi.
Svo syngjum við öll saman: „By the time I get to Phoenix …“

Lars Mikael Raatamaa

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl

0 ummæli við “Ég er Gertrude Stein e. Lars Mikael Raatamaa”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni