Lyrikline

Tregawöttin tíu þúsund vilja vekja athygli ljóðelskra á vefnum www.lyrikline.org. Þar má finna ljóð og ljóðaþýðingar eftir gríðarlegan fjölda höfunda, frá mörgum heimsins hornum. Þjóðverjar eru til að mynda fyrirferðarmiklir, sem og þýðingar á verkum Þjóðverja. Einn er þar fulltrúi Íslendinga, en það er ljóðskáldið Sjón. Alls eru skáldin um 370 og tungumálin 41, og ljóðin um 3.700. Meðal ljóðskálda sem hafa verið þýdd á íslensku, að litlu marki en þó, eru skáldin Durs Grünbein, Anne Duden og Petr Borkovec, en ljóð þeirra birtust í bók Nýhils Af ljóðum. Þá má finna þarna ljóð eftir Fadhir Al-Azzawi, Paul Celan, Ismail Kadare, Thomas Boberg og Hans Magnus Enzenberger, en ljóð eftir þann síðasttalda birtist á Tregawöttunum.

0 ummæli við “Lyrikline”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni