Gellur fíla stríð e. Drew Gardner

Drew Gardner, ásamt gelluSögustund: Tróju Olíu Stríð (annar hluti)
Trójustríðið, gellur fíla það
og smelli eins og „Gellur fíla stríð,“
„Töframenn hafa lent á andlitinu mínu,“
„Guð skapaði stelpur sem líkar vel við stríð,“
og „Þannig liggur landið eftir Colin Powell.“

Fleiri konur en menn njóta stríðsins
með tveggja hnefa sannleika
áður en skipt er um föt
með því að sýna stríðið sem
gellur að fíla síma stríðs.

Reðurmiðlægar gellur:
þær fíla gaura með stór stríð.
Ég bara get ekki, þú veist, trúað á stríð
gegn gellum þegar þessi á-móti-gellum stríð eru
í gangi.
Konurnar verða alveg „Ó, en sætt stríð!“

Verkefni þínu, kafteinn, er lokið:
njóttu ávaxta stríðsins.
Það er svo rómantískt,
gellur fíla stríð (sérstaklega gellur á pillunni).
Upplifunin er töfrum líkust.
Ó, já, þú getur startað alveg æðislegu stríði.
Gellum líkar vel við næs stríð.

Konur eru frábærir kennarar
þeirrar bitru reynslu að það að vera
á móti stríði verður manni ekki út um drátt.
„Á-móti-stríði“ gaur (sem er oft sá sem er hvað hæfastur
til að gefa ást og traust) er oft afskrifaður
sem „friðarsinni“, og litið framhjá honum
og einhver hrotti tekinn framyfir sem byrjar stríð.
Friðarsinninn eigrar gegnum lífið í ástandi
andlegrar geldingar,
hjarta hans skaddað af klóm kvenlegrar græðgi
og gallaðrar sálfræði. Hann er aumingja grey sem hefur
hlustað of bókstaflega
á konurnar sem ljúga og segja að það sem þær vilji
frá mönnum sé aðdáun og skilningur.
Það sem þær vilja er stríð.

Hann hefur ekki þjáðst nægilega af reynslu sinni
til að afhjúpa leynilegt markmið
kvenkynsins: stríð.
Stríð gerir þig að konu.
Gellur fíla stríð. Her
þjónusta er hið eina sanna tjáningarform stríðs.
Svo fíla gellur það líka.
Nýjasti brandarinn sem gengur virðist
snúast um kommúnisma, konur, Stalín,
og vísanir í gömlu Sovétríkin
á hátindi Kalda Stríðsins:
gellur fíla heitt stríð.

En hvað um fyrirbærið „stríðs strákur“?
Sérhver maður veit, eða hefur séð í verki,
að því fleiri stríð sem hann startar,
því meiri árangri nær hann í því að laða að sér konur,
og því friðsamari sem hann er,
því líklegra er að hann dagi uppi sem „friðarsinni“.
En flestir karlmenn eru félagslega skilyrtir til að rækta samhljóm,
ekki mishljóm, og þannig neita þeir að taka þátt í
þessum afbrigðileika.
Flestir karlmenn eru friðarsinnar, sem hafa engan áhuga á stríði.

Það sem kona vill í raun og veru er stríðs-mangari, Repúblikani
sem reynist að lokum vera friðarsinni (við hana).
Hann er söguhetja skáldsagna hennar og kvöldfrétta.
En hún mun sætta sig - til skamms tíma, að minnsta kosti -
við siðblindan olíumilljarðamæring
sem getur boðið henni stríð.
Í óskýrri hugmynd sinni um heiminn,
jafnar hún stríði við kvenleika
vegna þess að hún gerir ráð fyrir að sjónvarpið
og kvikmyndir endurspegli raunveruleikann, og að
farsælir karlmenn séu því alltaf stríðsóð skrímsli.

Vondir strákar eru leiðinlegir, tamdir, hættulausir
og hlaðnir kynorku.
Þeir eru áskorun (ég meina að
þeir falla ekki samstundis fyrir Píkuvaldinu).
Kreppandi Neanderdalíska upphandleggsvöðvana,
þessar konur eru líklegar til að draga hann
áleiðis til Pentagon
þar sem henni getur fundist hún vera - svona einu sinni -
aflvana í eigin klóm,
stríðsfantasía verður að veruleika.
Hormóna-drifin „rökvísi“ konu
leggur að jöfnu vald og stríð.
Hún baðar sig í ljóma hrás stríðs.
Það er sami hríslingur og liðast
gegnum sófann hennar þegar stríðsmangandi strákur
dekrar við hana, og lætur eftir öllum hugdettum hennar.
Svo lengi sem hún daðrar við stríðsstrákinn -
og það verður stutt því að
fjárhagsáætlun hennar er í Þríhliða Nefndinni hennar -
þá getur hún leyft sér að vera villt,
að upplifa óhindraða mennsku,
að tjá kynorku sína frjálst eins og
náttúran ætlaði - með stríði.
Í nokkur hröð andartök
mun hún verða einstaklingur
og manneskja.

Trúa því að hegðun karlmanna sé afleiðing
æxlunartilraunar á vegum kvenna?
Ef þú misstir af því,
þá er grundvallar ályktunin sú að með því að fylgja
eðlishvöt sinni til að æxla sig með
John Ashcroft
vinna konur gegn siðmenningunni,
og skapa á virkan hátt meiri árásargirni í fari karlmanna.
Svo virðist sem skynsamlegt samfélag ætti að hafa
hag af því að berjast gegn þessu.

Drew Gardner

Ingólfur Gíslason þýddi.

0 ummæli við “Gellur fíla stríð e. Drew Gardner”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni