Undir þessari regnhlíf er önnur regnhlíf e. Shönnu Compton

Shanna ComptonÞað var rigning & þau stóðu saman
undir strætóskýlinu þó hún héldi
á doppóttri regnhlíf sem enn var
opin & það draup af henni. Hann hugsaði,
ég þori að veðja að undir pilsinu hennar er
annað pils, eins konar millipils
& svo undirkjóll & nælonsokkar
festir með sokkabandi með sveigjanlegum
hnöppum & gúmmíhöldum innundir
mittisteygjunni & undir kápunni
hennar er peysa & svo
skyrta & svo nærskyrta
& svo brjóstahöld & svo
heldur betur
nokkuð.

Shanna Compton -
Ljóðið er úr bókinni Down Spooky.

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl.

0 ummæli við “Undir þessari regnhlíf er önnur regnhlíf e. Shönnu Compton”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni