það sem við lærum í sextíuogáttaárabekk (helmingur handa díter) e. Sjón

Sjóní dag er rífandi uppgangur á prentstofu Austurbæjar
og það sama má segja um gervallan hnöttinn

endurtakið eftir mér:
prestar sem ferðast með neðanjarðarlestum
kallast farþegar …

allir snúningsboltar í Hannover
allar ljósakrónur í Osaka
öll kattarspor í Nuuk
þegar ég vakna skal það allt verða þitt!

þar sem leðurblakan hangir í stimpilklukkunni
– þar áttu heima

*

endurtakið eftir mér:
tærnar á vinstri hendi eru fimm;
hunang, fretur, kattegat og Bessi …

allir vinnuvettlingar í Wimbledon
allar stélfjaðrir á Seyðisfirði
öll sykurkör í Harare
þegar ég vakna skal það allt verða þitt!

þar sem dóttir hakkavélaframleiðandans baðar sig
- þar áttu heima

*

endurtakið eftir mér:
í þrjúþúsundeitthundraðastaogáttunda eintaki
af þriðju prentun á sjálfstæðu fólki
er bjartur í sumarhúsum nefndur karlotta mayer …

allir strætisvagnamiðar í Ríó
allar neðrivarir í Kirkút
öll herðatré í Basel
– þegar ég vakna skal það allt verða þitt!

þar sem karlsvagninn speglast í súpuskeiðinni
- þar áttu heima

þegar flóin og steypireiðurin hittast í alfræðibókinni eru þau jafn stór
þegar litirnir hverfa úr þjóðfánunum tekur jörðin að blakta

Sjón

Eftirmáli

Þetta ljóð er helmingur texta sem við Einar Már ortum til að heiðra minningu
Dieters Roth og fluttum af svölum Listasafns Reykjavíkur við opnun Listahátíðar
í Reykjavík sumarið 2005. Einars hluti birtist í síðustu ljóðabók hans undir
titilinum „Ballaðan um listamanninn sem flutti til Íslands og öðlaðist frægð“.
Og nú getur fólk skemmt sér við að flytja þetta saman. Þá er gott að stilla
sér upp í sitthvorum enda herbergisins, augliti til auglitis og svo er byrjað
á fyrsta erindi ljóðsins míns, fyrsta erindið í ljóði Einars er lesið, og
svo koll af kolli uns allt er búið.

1 ummæli við “það sem við lærum í sextíuogáttaárabekk (helmingur handa díter) e. Sjón”


  1. 1 guðrún

    stór orð og hrífandi en sálarleysið algert. Hvenær er skáldið sár og hvenær tól fyrir viðeigandi pjatt?

Svaraðu færslunni