Að mynda orð

Stilkatanka - Kári Tulinius Föstudaginn 23. febrúar klukkan 17:00 verður sýningin „Að mynda orð“ opnuð í Hoffmannsgalleríi. Sýningin samanstendur af nýjum og eldri verkum myndlistarmanna og ljóðskálda sem notast bæði við texta og myndræna þætti í verkum sínum.

Eftirtaldir aðilar eiga verk á sýningunni:

Ásta Ólafsdóttir

Davíð Stefánsson

Eiríkur Örn Norðdahl

Guðný Rósa Ingimarsdóttir

Gyrðir Elíasson

Haukur Ingvarsson

Hlynur Hallsson

Hreinn Friðfinnsson

Hörn Harðardóttir

Kári Tulinius

Óskar Árni Óskarsson

Stórsveit Áræðis

Þorvaldur Þorsteinsson

Sýningarstjórar eru Davíð Stefánsson og Kristinn G. Harðarson.

Hoffmannsgallerí er staðsett í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar að Hringbraut 121, fjórðu hæð og er opið frá 09:00 - 17:00 alla virka daga. Sýningin stendur fram í apríl.

Aðgangur er ókeypis. Léttar veitingar verða í boði við opnun.

0 ummæli við “Að mynda orð”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni