upp eða niður úr óendanlegri M I Ð S T Ö Ð
B A R M A F U L L U R við deplandi brun tímans
sagði röddin í höfði mér:
ÁSTIN ER FJARLÆGÐIN
MILLI ÞÍN OG ÞESS SEM ÞÚ ELSKAR
ÞAÐ SEM ÞÚ ELSKAR ER HLUTSKIPTI ÞITT
*
þá sá ég skrúðgöngu elskenda minna
þessa SKEMMTIKRAFTA grínista leikara söngvara
gleymna á mitt eigið sjálf svo oft ég
þráði að deyja sjálfur til að lifa í þeim
þvínæst FORELDRUM mínum VINUM mínum þurrausnum
VOFUNUM sem eitt sinn voru fullar ráðþrota og hamslausri ást
kærleika og sekt og bræði og
elskulegheitum í garð þess sem
naglvofa þráir að snúa til jarðar
*
þá sagði röddin í höfði mér
HVORT SEM ÞÚ ELSKAR ÞAÐ SEM ÞÚ ELSKAR
EÐA LIFIR AFSKIPTUR Í LÁTLAUSRI
UPPREISN GEGN ÞVÍ
ER ÞAÐ SEM ÞÚ ELSKAR HLUTSKIPTI ÞITT
Frank Bidart
Höfundur hlaut á dögunum hin virtu Bollingen-ljóðaverðlaun Yale háskóla.
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl
0 ummæli við “Sekur um ryk e. Frank Bidart”