Á árunum 1983-1984 samdi kanadíska tilraunaskáldið bpNichol ljóðið „First Screening“ með hjálp Apple IIe tölvu á Apple BASIC forritunarmáli. Ljóðið var upphaflega gefið út á 100 tölusettum og árituðum 5.25 floppy-diskum, ásamt prentmáli. Apple IIe tölvan úreltist hins vegar fljótt og varð ljóðið með því ófáanlegt. Árið 1992, fáeinum árum eftir að skáldið lést, gerði J.B. Hohm nýja hypercard-útgáfu af ljóðinu, sem var gefin út árið á eftir á 3.5 floppy-diskum. Þessi útgáfa varð fljótt úreld líka, auk þess sem líftími diskettna er ekki nema um 5 ár. Nú hefur Vispo-vefurinn birt fjórar ólíkar útgáfur af ljóðinu.
1. Fyrst ber að nefna orginal-útgáfuna með Apple IIe hermi, sem hægt er að nálgast hér.
2. Þá ber að nefna Javascript-útgáfu sem Marko Niemi og Jim Andrews bera ábyrgð á. Smellið hér.
3. Quicktime-bíó af hermi-útgáfunni.
4. Upphaflega Hypercard útgáfan.
I lika verymuch this sexytime pomes and look at them very closely yes. You like sexytime yes?