Vísunda-Villi er
liðinn
hann átti það til að
ríða vatnssléttum silfur
stóðhesti
og brjóta einatværþrjárfjórarfimm dúfurbarasvona
Jesús
hann var myndarlegur maður
en það sem ég vildi vita var
hvernig líkar þér við bláeygða piltinn þinn
Herra Dauði
e.e. cummings
Hver þýðir?
Ég þýddi þetta. Ég fékk síðustjórann til að kóða inndrættina, og lagði ekki í að setja nokkuð inn í það kóðaflóð - og hafði ekki sett þýðandanafnið í textann fyrirfram.