Sálumessa

vonnegutNú laust fyrir helgi lést bandaríski rithöfundurinn Kurt Vonnegut á heimili sínu í New York. Árið 2005 gaf hann frá sér bókina A Man Without a Country, og lét hann þau orð fylgja að hún yrði hans síðasta verk, eins og raunin varð. Ljóðið sem hér fer á eftir birtist á lokasíðum bókarinnar, en síðasta erindi þess hefur verið birt í minningargreinum stórblaðanna vestanhafs, með tilvísun í hve viðeigandi það er að höfundinum látnum. Hér birtist ljóðið hins vegar í heild sinni, og í íslenskri þýðingu.


Sálumessa

Krossfest Jörðin,
fengi hún rödd
og eyra fyrir kaldhæðni,
gæti hæglega sagt
um misnotkun okkar,
„Faðir, fyrirgef þeim,
Því þeir vita ekki, hvað þeir gjöra.“

Kaldhæðnin væri
að við vitum hvað
við erum að gera.

Þegar síðasta lifandi veran
hefur dáið af okkar völdum,
hve ljóðrænt það væri
ef Jörðin gæti sagt,
röddu sem flyti upp
ef til vill
neðan af botni
Miklagljúfurs,
„Því er lokið.“
Fólki líkaði ekki vistin hér.

Þýðing: Björn Unnar Valsson og Ingi Björn Guðnason

0 ummæli við “Sálumessa”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni