Ljóðasamkeppni Nýhil og Verðandi

Fundi slitið

Mikilsverðir menn
labba í röð út úr þinghúsinu.
Þeir reyna hvað þeir geta
að vera alvarlegir á svip.
Það er erfitt fyrir þá,
því björt sól skín
í augun á þeim.
Þeir píra augun með alvarlegum
ólundarsvip og eru ekki
eins alvarlegir og
þá langaði til.

Steinunn Harðardóttir

0 ummæli við “Ljóðasamkeppni Nýhil og Verðandi”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni