Sígaunar verða Rómanar verða Harmoníkufólk

Harmoníkufólk
Það þykir ekki tilhlýðilegt lengur í Evrópu að nota orð á borð við sigane eða gypsy og réttara þykir að nota orðið romani, sem er jú það sem þeir kalla sig sjálfir. Orðið rom þýðir einfaldlega maður. Hins vegar hafa fréttamenn RÚV ákveðið að orðið rómani sé einnig orðið óæskilegt, áður en það hafði einu sinni náð að vinna sér nokkurn þegnrétt í tungunni, og kallar þá sígauna sem hingað hafa komið Harmoníkufólk. Einnig hefur verið notað heitið „Austur-Evrópskir ríkisborgarar.“ (skv. frétt á textavarpi RÚV í gær) Undirritaður hefur ferðast víða um Austur-Evrópu en hefur þó en ekki fundið land sem heitir Austur-Evrópa. Undirritaður hefur líka gerst svo frægur að syngja Fram á nótt með harmónikufólki í slóvakísku skógarrjóðri. Það harmónikufólk var samt bara með gítar sem hlýtur að teljast forvitnilegt rannsóknarefni fyrir tónlistarmannfræðinga.

Undirritaður er Ásgeir H Ingólfsson.

0 ummæli við “Sígaunar verða Rómanar verða Harmoníkufólk”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni