Smekkleysu-Gleðskapur

ivor.gifÚt er komin hjá Smekkleysu bókin Það er að hefjast gleðskapur. Hún er sú þriðja í röðinni Smárit Smekkleysu og hefur að geyma smáprósa eftir Ivor Cutler, skáld og sönglagahöfund frá Glasgow í Skotlandi. Cutler hafði fyrir sið að flytja lög sín og ljóð við eigin undirleik á stofuorgel. Á löngum ferli sendi hann frá sér allnokkrar hljómplötur auk fjölda bóka með stuttum textum og ljóðum, sinnti lengi kennslu og var sannkallaður þúsundþjalasmiður. Ekki gekk honum þó jafnvel í öllum störfum og var hann til að mynda rekin úr flugher hennar hátignar fyrir að vera of gjarn á að láta sig dreyma.

Bítlarnir Paul McCartney og John Lennon voru miklir aðdáendur og fengu hann til þess að leika í Bítlamyndinni Magical Mystery Tour. Í káputexta bókarinnar – sem Óskar Árni Óskarsson þýddi – segir Jón Hallur Stefánsson meðal annars:

Einstök kímnigáfa litar öll hans verk, í þeim er hversdagsleikinn fáránlegur og fáránleikinn hversdagslegur. Lúmsk hæðni og sjálfshæðni eru ofin saman við mannlega hlýju í verkum sérvitringa skoska, hann vinnur stöðugt gegn því að vera tekinn of hátíðlega en í orðum hans býr þó alltaf skáldlegur sannleikur sóttur úr frelsandi djúpum ímyndunaraflsins.

Loks bendum við lesendum á þetta myndbrot þar sem Cutler flytur ljóðið Shoplifters.

0 ummæli við “Smekkleysu-Gleðskapur”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni