Ljóðabókaflóð og upplestur

jpv.jpgJólabókaflóð JPV er að bresta á og þrjár ljóðabækur þaðan eru á leiðinni í búðir eftir helgina en þangað til verða áhugasamir að reyna að láta höfunda bókanna pranga þeim inná sig, enda fátt ljóðrænna en að standa við hraðbankann á meðan ljóðskáldið áritar bókina sem það er alveg að fara að selja þér. Eitt ljóðskáldana er Kristian Guttesen sem gefur út Glæpaljóð og hann mun einmitt lesa upp úr bókinni í bókabúð Eymundsson í Austurstræti (götunni þar sem Sannleikurinn brann svo fallega um daginn) og hefst upplesturinn klukkan níu í kvöld. Guttesen mun einnig lesa upp úr eldri verkum (enda heimta æstustu aðdáendurnir alltaf gömlu hittarana). Þetta er skáldaspírukvöld númer 87 – við bíðum spennt eftir hvað gerist á númer 100. Aðgangur er ókeypis en þið getið alveg keypt ykkur kaffi eða bækur ef ykkur langar endilega að eyða pening.

Hinar ljóðabækurnar tvær eru Enn sefur vatnið eftir Valdimar Tómasson og Á mörkum eftir Valgarð Egilsson. Valdimar er fæddur árið 1971 og ólst upp í Mýrdal en flutti á mölina sextán ára gamall. Hann hefur þónokkuð fengist við ljóðaþýðingar og þýddi bókina Ljóð um dauðann eftir Inger Christensen. Enn sefur vatnið er hins vegar fyrsta frumsamda ljóðabók hans. Valgarður Egilsson fæddist á Grenivík árið 1940. Hann er læknir en hefur skrifað ljóð, leikrit og skáldsögu auk einstaka lyfseðils. Allt mætist þetta í bókinni nýju þar sem náið samneyti við náttúruna og rannsóknir á frumeigindum lífvera mætast – á mörkum. Svo má ekki gleyma því að Kristian Guttesen fæddist árið 1974 í Danmörku þar sem hann eyddi fyrstu árunum.

Nánar má lesa um bækurnar á hér. Til þess að ljúka þessu plöggi er svo rétt að benda á athugasemdakerfið sem vildi minna feimna lesendur á tilvist sína. Þar má kynnast öðrum lesendum, semja ljóð um efni færslunnar, semja ljóð um ritstjóra síðunnar eða bara allan fjandann.

2 ummæli við “Ljóðabókaflóð og upplestur”


  1. 1 Bastarður Víkinga

    Hóhumm,
    sagði Valgarður
    er hann barðist
    við kommentin:
    Kann ekki á tölvu.

  2. 2 Glæpaskáldið

    ritstjóri síðunnar
    er eins og allur fjandinn
    en það rímar ekkert við síðunnar
    það er nefnilega vandinn

Svaraðu færslunni