Tregawöttunum tíuþúsund hefur borist eftirfarandi tilkynning:
Í tilefni gildistöku nýju reykingalaganna stendur Stéttarfélag ungskálda (SUS) fyrir síðasta reykmettaða ljóðakvöldi Íslandssögunnar fimmtudagskvöldið 31. maí. Ljóðakvöldið verður haldið á Stúdentakjallaranum og hefst upplestur klukkan 21:00. Fram koma skáldin Arngrímur Vídalín, Hildur Lilliendahl, Jón Örn Loðmfjörð, Kári Páll Óskarsson, Kristin Svava Tómasdóttir, Steinar Bragi og Urður Snædal.
Áhersla verður lögð á alþýðlegt og fjölskylduvænt andrúmsloft.
0 ummæli við “Síðasta reykmettaða ljóðakvöldið!”