3 ljóð e. Þórdísi Björnsdóttur

Í felum bakvið gluggatjöldinM Y N D

Ástin mín hvarf í sumarhitanum.

Ég man enn hversu fallega
hárið hennar brann
meðan hún þræddi nálina,
stakk henni gegnum auga hans
og saumaði í það mynd af lítilli stúlku
sem stóð uppi á stól fyrir framan spegilinn
og fléttaði sítt hárið.

Hún lét sig dreyma um konur
í hvítum kjólum . . .

Ég klemmi saman augun,
sé hana fyrir mér með eld í hárinu
þar sem hún situr og strýkur mér
svo blíðlega um vangann.

„Og mundu bara að opna ekki augun
því annars geta þeir blindað þig,
annars geta þeir blindað þig, elskan mín,“
sagði hún í eyra mitt hvíslandi
áður en hún hvarf.

.
.

B A K V I Ð   H U R Ð

Ég ber í vegginn
í von um að þú komir,
fel mig síðan bakvið hurðina
og bíð,

minnist þess
þegar þú komst í fyrsta sinn
og hvað ég varð undrandi
að finna þig við hlið mér.

Ég hvísla nafn þitt
aftur og aftur
uns það er ekki lengur þitt,

og renni fingrum
yfir grímuna í höndum mér,
ögn kvíðin
fyrir að setja hana á andlitið.

.
.

V I Ð   Á R B A K K A N N

Þú hvarfst á brott í morgunsárið
jafn snögglega og regnvatnið
gufar upp í sumarhitanum,

og ég sé þig ennþá fyrir mér
svífa burt
eins og sólina,
burt eins og guð.

Nóttina áður dreymdi mig
að ég væri með augu fuglsins
sem flaug yfir ána,

og nú geng ég eftir bakkanum
í leit að stað til að hvílast
undir fallegu tré
og bíða.

Ég færði þér svefn minn
en þú litaðir hann rauðan
meðan stór skuggi
myndaðist með rætur
sem uxu sífellt nær hjarta okkar
þar sem við stóðum
og horfðum á vegina mætast.

Síðan skildust leiðir.

Ég horfði á þig fjarlægjast
og langaði að hrópa á hjálp
en var of feimin.

Og nú bíð ég þess eins
að þú komir aftur
og fljótir niður ána
sem alltaf rann á milli okkar;

ég mun bíða við bakkann
uns hausta tekur,

ég mun bíða þín þar
uns fyrstu droparnir falla.

Þórdís Björnsdóttir

Ljóðin eru úr nýrri ljóðabók Þórdísar Í felum bakvið gluggatjöldin. Bókin er 82 síður í veglegri harðspjaldaútgáfu, og kostar 1.800 krónur. Þórdís hefur áður sent frá sér bækurnar Ást og appelsínur, og Og svo kom nóttin, auk þess sem hún skrifaði bókina Vera & Linus í samstarfi við bandaríska ljóðskáldið Jesse Ball. Bókin fæst sem stendur á afslætti í Bóksölu Stúdenta, á 1.503 krónur. Smellið hér til að kaupa.

0 ummæli við “3 ljóð e. Þórdísi Björnsdóttur”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni