Framleiðsla fjandmanna e. Leif Holmstrand

Maður þvælist aðallega bara um þennan vinnustað.
Konurnar, þær sem hér eru, grípa til vopna þegar þær æsast,
að minnsta kosti þær nýráðnu.
Andrúmsloftið er annars ágætt.

Gestinum mætir þögul undran, þessar venjulegu spurnarleysur.
Herbergið opnar kaldan faðm sinn. Tvístígur, brýnir raustina
og segist vera
hugmyndafræðilega hlynntur þessu verkefni sem hungrar í gæsku:
hér finnast fullkomnar rýmingaráætlanir, hreinar fyrirætlanir
og forvitnir áhorfendur,
kannski dálítið karlmannlegir.

Maður brýnir raustina, ákveður snögglega
að búa til morðingjafígúru
byggða á vinnufötum starfsmannanna.

Ásaumuð bindi verða eins og kjóll.
Kringlóttur antíkrammi settur þar sem höfuðið á að vera.
Af hendingu velur maður að nota alvöru hendur.

Maður brýnir raustina og festir augnaráð gestsins
á ljósmyndina í kringlótta antíkrammanum.
Gesturinn hlær og grípur til vopna.
Ég brýni raustina.

Leif Holmstrand

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl

Leif Holmstrand verður einn gesta 3ju alþjóðlegu ljóðahátíðar Nýhils, 12.-14. október næstkomandi.

0 ummæli við “Framleiðsla fjandmanna e. Leif Holmstrand”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni