Úr Á morgun eru kerfin aftur til e. Lars Skinnebach

Lars SkinnebachÁ morgun eru kerfin aftur til. Sveitarfélögin
Reglubundinn svefn lífgar uppá
Ónæmisvarnirnar ganga fylktu liði í dag. Ah, ég er svo hraustur
Það er huggun. Léttir. Það er ennþá nótt
í litlu heilunum, þeir reykja hass í húsunum, í íbúðunum
óendanlegur vetur. Eða óendanlegt sumar. Eða hvíla sig
í rauðum blóðskrokkum. Elskan mín, heyrirðu í þeim dreyma
um betra líf? Það er þögn í höllinni. Hann er svo
Stinnur rassinn þinn, svo fastur í sér, haltu eftir
við ríðum og við riðum. Hann smeygði sér fram til að sjá
löggjafarsamkunduna, vítisljósið. Ég á heiminn
ég er enginn. Heyrirðu hvort partíið hélt áfram?
Smekkurinn er hið andlega grundvallareinkenni
Mér er bara alveg sama um sannleika. Aspargata, Aspargata
Hér kemur sjálfsævisaga mín … Mikið er fínt
að minnast, það er æðislegt á bragðið
Það er yfirvegaður andardráttur minn sem fær heiminn til að hljóða.

Lars Skinnebach

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl. Þýtt úr sænskri þýðingu Henriks Petersen.
Lars Skinnebach verður meðal gesta á ljóðahátíð Nýhils 12.-14. október næstkomandi.

0 ummæli við “Úr Á morgun eru kerfin aftur til e. Lars Skinnebach”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni