Út er komin hjá Bjarti bókaforlagi ljóðabókin söngur steinasafnarans eftir Sjón. Sjón, (f. 1962), er ljóðskáld og sagnahöfundur sem hóf feril sinn með útgáfu ljóðabókarinnar Sýnir, sumarið 1978. Á níunda áratugnum var hann í fararbroddi þeirra ungu skálda sem leituðust við að endurnýja íslenska ljóðlist með tækjum súrrealismans. Jafnframt því að hafa gefið út ellefu ljóðabækur hefur Sjón ritað söngtexta, líbrettó, kvikmyndahandrit og sex skáldsögur. Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir einn söngtexta sinna í kvikmyndinni Dancer in the Dark, og fyrir skáldsöguna Skugga-Baldur hlaut hann bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2005.
Bókin er 50 síður.
Kápa: Ásta S. Guðbjartsdóttir
Mynd á kápu: Olga Bergmann
Prentuð í Odda.
Isbn: 978-9979-788-96-6
Verð: 1680 krónur
0 ummæli við “söngur steinasafnarans - ný ljóðabók eftir Sjón”