Arngrímur Vídalín flytur Undankomu endurkvæmni

Arngrímur Vídalín flytur ljóð sitt Undankoma endurkvæmni á 3ju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils. Svo útskýrir skáldið ljóð sitt:

„Endurkvæmni er meðal mikilvægari algilda í málfræði. Samkvæmt endurkvæmni geta setningar leitt af sér óendanlegt magn tilvísunarsetninga. Til dæmis geturðu tekið setningar eins og „Sigga sá bílinn“ og „bíllinn brunaði“ og skrifað „Sigga sá bílinn sem brunaði“.
Hins vegar, ef unnið er með margar tilvísunarsetningar sem alltaf eru hluti af nafnlið sem er frumlag, kemur alltaf ný og ný tilvísunarsetning áður en móðursetningin getur haldið áfram, til dæmis: Osturinn sem rottan át var myglaður; osturinn sem rottan sem kötturinn elti át var myglaður; osturinn sem rottan sem kötturinn sem hundurinn elti beit át var myglaður o.s.frv.
Þannig vann ég með þennan texta, þó nokkuð frjálslegar, það er ekki alveg eftir reglunum, upp á aukinn sveigjanleika að gera. Hins vegar stendur til hjá mér að kanna möguleikana enn fremur innan ramma íslenskrar málfræði algjörlega, og án undantekninga.“

0 ummæli við “Arngrímur Vídalín flytur Undankomu endurkvæmni”


  1. Engin ummæli