Halellúja!
Það virkar.
Við sprengdum úr þeim skítinn.
Við sprengdum skítinn beinustu leið aftur uppí görnina á þeim
og útum fokking eyrun á þeim.
Það virkar.
Við sprengdum úr þeim skítinn.
Þeir köfnuðu í eigin skít!
Halellúja.
Lofaður sé drottinn fyrir allt sem er gott.
Við sprengdum þá í fokking skít.
Þeir eru að éta hann.
Lofaður sé drottinn fyrir allt sem er gott.
Við sprengdum punginn á þeim í rykflísar,
í flísar af fokking ryki.
Okkur tókst það.
Nú vil ég að þú komir hingað
og kyssir mig á munninn.
Þýðing: Kári Páll Óskarsson
0 ummæli við “Bandarískur fótbolti e. Harold Pinter”