Færslusafn fyrir November 2007

Þjóðsöngur Íslands (eftir minni) e. Kára Tulinius

Kraumar mænuvökvi e. Ingólf Gíslason

Sterkasti drykkur lifrar minnar
litla rauða lifrin mín

sko, ljóð, sígildar dægurlagaperlur, myndlist
fólk ætti að fíla þetta en bara gerir það ekki

til dæmis ljóð um mikilvægi vináttunnar … um mikilfengleik víðáttunnar
fökk sé þér vináttublær

ég er bara að reyna að segja ég elska þig
brjóta af orðunum frostið

fökk sé þér Satan alltaf eins og venjulega
sama sjónarhorn, ný lúðrasveit

nei, ég grínast. Spaugsamur náungi ég, kærleiksríkur
samt. Hvar ertu litla ég?

Þrjú prósaljóð eftir Charles Simic

Ég er síðasti hermaður Napóleons. Næstum tvö hundruð ár eru liðin og ég er enn á undanhaldi frá Moskvu. Meðfram veginum standa hvít birkitré og forin nær mér upp að hnjám. Eineygða konan vill selja mér kjúkling og ég er ekki einu sinni í neinum fötum.

Í leit að réttu tungumáli e. Eirík Örn Norðdahl

Myndhverfing Frá lokum þarsíðustu aldar og fram á miðja þá síðustu börðust menn um víða vesturveröld fyrir réttinum til að yrkja utan forms, eða í nýju frjálsara formi. Við þessi umskipti formsins varð til nýtt ljóðmál, ekki endilega flóknara en það sem gerðist fyrir – eins og stundum hefur verið haldið fram – heldur einfaldlega annað. Það var erfitt aflestrar. Að lesa Stefán Hörð Grímsson var kannski svipað því að reyna koma lófastórri kartöflu ofan í kokið. Að lesa Stefán Hörð Grímsson í dag er hins vegar eins og að bregða heitum hnífi á smjör, svo gripið sé til algengrar líkingar. „Þú grætur barnsauga mitt / en hin forhertu / sjáöldur hins vaxna / eru tárvana.“ [1] Líkingamál atómskáldanna er allt um kring – það þarf enginn að fá taugaáfall þó hann rekist á súrrealíska myndlíkingu, hún hefur verið gersneydd róttækni sinni, innlimuð í poppmenningu og daglegt líf. Í Landsbankanum eru áramót um hver mánaðamót og maður þarf ekki að brima lengi um internetið til að finna súrrealisma af fyrstu gráðu – maður fær hann beinlínis í pósthólfið sitt á hverjum einasta degi.

3 ljóð e. Aðalstein Jörundsson

Mættki

Ég er máttkur,

æstur í ungdóm og ríki í hönd
níðist mót svefni og gleymsku
ég mun sanna
sífellt
hvern dag
að ég er ofurmenni og
mót sorgum fer ég á braut
birtist svo aftur sem guð,

með vopn í hönd.

Mest lesið / Mest sent - ljóðið fann Bryndís Björgvinsdóttir

Mest lesið / Mest sent

Ljóðið fann Bryndís Björgvinsdóttir.

Aðbókin eftir Gísla Þór Ólafsson

AðbókinÚt er komin önnur ljóðabók Gísla Þórs Ólafssonar, Aðbókin. Sem fyrr teiknaði Óli Þór Ólafsson kápumyndina. Hægt er að panta bókina með því að senda póst á thorgillon@gmail.com
Lafleur gefur út.

Afmæli

Að ég sé heppinn að við náðum ekki saman
hefði annars þurft að kaupa handa henni

Vilja-Tuulia Huotarinen á ljóðahátíð Nýhils

Finnska ljóðskáldið Vilja-Tuulia Huotarinen les upp á ljóðahátíð Nýhils.

Sannar bænir e. Kára Pál Óskarsson

Sannar bænir eftir Kára Pál Óskarsson

Ljóðstafur

Lista og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör. Veitt verða vegleg verðlaun og mun verðlaunaskáldið fá til varðveislu í eitt ár göngustaf sem á verður festur skjöldur með nafni þess. 3ja manna dómnefnd mun velja úr ljóðum sem berast. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5. Skilafrestur er til 9. desember 2007 og utanáskriftin er:

Ljóðstafur Jóns úr Vör
Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs
b.t. Sigurbjargar H. Hauksdóttur,
Fannborg 2, 200 Kópavogur

Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi Jóns úr Vör mánudaginn 21. janúar 2008.
Þátttöku ljóð má sækja á ofangreint heimilisfang fyrir 1. febrúar; eftir það verður þeim eytt.