Aðbókin eftir Gísla Þór Ólafsson

AðbókinÚt er komin önnur ljóðabók Gísla Þórs Ólafssonar, Aðbókin. Sem fyrr teiknaði Óli Þór Ólafsson kápumyndina. Hægt er að panta bókina með því að senda póst á thorgillon@gmail.com
Lafleur gefur út.

Afmæli

Að ég sé heppinn að við náðum ekki saman
hefði annars þurft að kaupa handa henni
iPhonesíma í þrítugsafmælisgjöf

það er ekki verðið
það er nýjungagirnin

læt sms nægja á afmælisdaginn

Þegar Kim Larsen neitaði
að taka við danska riddarakrossinum

Að fyrir svona ári síðan
hefðurðu sent mér skeyti um þetta
eða klippu á msninu
en ekki núna
ekki núna

0 ummæli við “Aðbókin eftir Gísla Þór Ólafsson”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni