Færslusafn fyrir December 2007

Sex föðurvor e. Eirík Norðdahl

1.

Faðir, vor þú. Sem ert.
Á himnum helgist þitt nafn. Til komi.
Þitt ríki verði þinn vilji. Svo – á jörðu sem á.
Himni gef oss. Í dag.
Vort daglegt brauð, fyrirgef oss.
Vorar skuldir [SVO].
Sem vér og fyrirgefum vorum.

Nýhil á Súfistanum

Til heiðurs jólunum efnir Nýhil til upplestrarkvölds í samstarfi við Súfistann, kaffihúsið á upphæðum Bókaverslunar Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan 20:00 þriðjudagskvöldið 18. desember. Troða þar troða upp tveir ritstjórnarmeðlimir Tregawattanna, Ingólfur Gíslason og Hildur Lilliendahl. Að auki láta aðventuljós skína Gísli Hvanndal, Una Björk Sigurðardóttir og hljómsveitin Palindrome.

Það er mögulegt e. Stan Apps

Stan AppsKaffi er gert úr mannlegri þjáningu
Börn eru gerð úr alsælu, vonandi
Það væri leiðinlegt að vera barn gert úr mannlegri þjáningu
Stuttermabolir eru gerðir úr mannlegri þjáningu
Ljóð eru gerð úr alsælu, vonandi
Það væri leiðinlegt að vera ljóð gert úr mannlegri þjáningu
Ekki að nokkur manneskja geti verið ljóð

Vefljóð

Ritstjórn Tíu þúsund tregawatta vill benda lesendum sínum á nýjan flipa hér efst á síðunni: „Vefljóð“. Þar má nálgast hlekki á fjöldann allan af vefuðum ljóðum sem vistuð eru annars staðar. Skipt er í tvo flokka: „Íslenskt“ og „Erlent“. Lesendur geta sent ábendingar um góð vefljóð á tiuthusundtregawott@gmail.com.

Steintöflur e. Kristian Guttesen

Þetta reddast e. Atla Bollason

Þetta verður allt í góðu maður. Það verður ekkert ófært. Þetta er bara týpísk svartsýni.
Og ef það verður ófært, þá þurfum við bara að komast að því hversu ófært verður.
Og ef það er ekkert svo ófært þá keyrum við bara.
Það er gaman.
DJ Allenheimer getur blastað smá postmodern babar á leiðinni. Kvíðið engu.

Atli Bollason

Tvö ljóð eftir Jacques Roubaud

Jacques RoubaudÍ ÞESSU TRÉ

Stígðu niður og sofðu ..í þessu tré, í þessu tré.
Brjóttu aftur jörðina .. í þessu tré, í þessu tré.
Austu jörðinni ..í þessu tré, í þessu tré.
Vanuppgötvaðu sortann ..í þessu tré, í þessu tré.

Ljóðið fann Jón Örn Loðmfjörð

fundið ljóð

Ljóðið fann skáldið Jón Örn Loðmfjörð á vafri sínu um veraldarvefinn, eftir að forritarinn Jón Örn Loðmfjörð hafði samið það“.

Tvö ljóð eftir Anne Sexton

Anne SextonÞEGAR MAÐUR FER INN Í KONU

Þegar maður
fer inn í konu,
eins og brimið bítur ströndina,
aftur og aftur,
og konan opnar munn sinn af nautn
og tennurnar glitra
eins og stafrófið,
Logos birtist mjólkandi stjörnu,
og maðurinn
innan í konunni
bindur hnút
svo þau
verða aldrei aðskilin aftur

Um ljóðið sem opið hugtak - stutt hugleiðing um nútímaljóð

Saga listheimspeki á 20. öld er að miklu leyti saga getuleysis. Ekki er það vegna þess að listfræðingar hafi verið ófrjóir, heldur vegna þess að þeir reyndu án afláts að svara sjálfri grundvallarspurningunni „hvað er list?” en hafa enn ekki reynst færir um að finna viðunandi svar. Áratugum saman hafa miklir hugsuðir glímt við þennan skilgreiningarvanda og lagt fram tilgátur þar að lútandi, en alltaf orðið að láta í minni pokann fyrir glundroða nútímans. Damien Hirst heldur sýningu á sundurskornum kýrskrokkum í formalínsklefum. Tracy Emin sýnir verkið “My Bed” sem samanstendur af hennar eigin rúmi , rúminu sem hún svaf í, naut ásta í og hugleiddi sjálfsmorð í. „Er þetta list” spyr alþýða manna, allt frá þekktum þáttastjórnendum í sjónvarpi til unglinga í íslenskum smábæjum; spurning sem felur þegar í sér neikvætt svar þeirra sem spyrja. Hið rétta svar er hins vegar: „Já”.