Tvö ljóð eftir Jacques Roubaud

Jacques RoubaudÍ ÞESSU TRÉ

Stígðu niður og sofðu ..í þessu tré, í þessu tré.
Brjóttu aftur jörðina .. í þessu tré, í þessu tré.
Austu jörðinni ..í þessu tré, í þessu tré.
Vanuppgötvaðu sortann ..í þessu tré, í þessu tré.
Endurreistu fótleggina ..í þessu tré, í þessu tré.
Hafnaðu moldinni ..í þessu tré, í þessu tré.
Skerðu ljósið ..í þessu tré, í þessu tré.
Fylltu tóftirnar ..í þessu tré, í þessu tré.
Skrifaðu, skrifaðu þig lifandi ..í þessu tré.

SLÁTTUR

Sláttur hafsins
…..vatn á hreyfingu ..vatn
……….flöktandi. ..rekald. ..tímían.

Netlur. ..Gegn tímanum
stefndi ég að angan þinni. ..ég lagðist fyrir í rústum þínum.

Ég svaf frammi fyrir líkama þínum.

Tími á móti ..horf-
inn nú. ..rós

Sem ljósmynd upphleypt.

Vindarnir..... rós
flói.....bænaband

Að hönd þín hindri...
Sláttur..tími
sem

…..á ný

kemur.

Þýðandi: Kári Páll Óskarsson

(Jacques Roubaud er ljóðskáld, skáldsagnahöfundur og stærðfræðingur, fæddur árið 1932 í Caluire-et-Cuire, Frakklandi. Hann er af mörgum talinn eitt fremsta franska Oulipo-skáld samtímans. Ljóðin eru úr bókinni Quelque chose noire, frá 1986.)

0 ummæli við “Tvö ljóð eftir Jacques Roubaud”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni