Kaffi er gert úr mannlegri þjáningu
Börn eru gerð úr alsælu, vonandi
Það væri leiðinlegt að vera barn gert úr mannlegri þjáningu
Stuttermabolir eru gerðir úr mannlegri þjáningu
Ljóð eru gerð úr alsælu, vonandi
Það væri leiðinlegt að vera ljóð gert úr mannlegri þjáningu
Ekki að nokkur manneskja geti verið ljóð
Fólk er ekki gert úr orðum; fólk er úr rafefnum
Fegurðin er gerð úr mannlegri þjáningu
Þegar sadómasókísku guðirnir hanga á sínum stað
Að vera áhugasamur er gert úr alsælu, vonandi
Það væri leiðinlegt að vera athugul gætni gerð úr mannlegri þjáningu
Það er mögulegt
Mannleg þjáning er gerð úr mannlegri þjáningu
Kaffi er gert úr fræi, jarðvegi, vöruþróun, hagkerfi,
Mannkynssögu, verkamannavinnu, sýrum, erfðamengi sem fær fólk til að hoppa,
Her, sérstökum handahreyfingum þeirra sem sá fræum eða tína baunir,
Sérstakri tösku,
Húsnæði fyrir alla aðila verksins,
Svona getur allt verið flókið á Jörðinni.
Án mannlegrar þjáningar væri ekki til næstum jafn mikið af kaffi
Án alsælu væri ekki til næstum jafn mikið af börnum
Þau gætu lifað í virki úr mannlegri þjáningu
Til að skýla sér fyrir villidýrum
Villidýr eru gerð úr alsælu, vonandi
En alsæla passar ekki sérlega vel í heiminn okkar
En það gerir þjáningin: maður getur þjáðst á milljón ólíka vegu og alls staðar
Allt gagnlegt er gert úr mannlegri þjáningu
Sættu þig við það
Það er jafnan annað hvort ólöglegt, siðlaust eða ómögulegt
Að setja verð á hluti sem framleiddir eru úr alsælu
Og jafnvel þó það takist þarf fólk að leggja hart að sér
Til að gleyma verðinu ef þau vilja öðlast skilning
Stan Apps
Þýðing: EÖN
Stan Apps er eitt bandarísku flarf-skáldanna. Ljóðið hér að ofan kemur úr nýrri bók hans, Info Ration.
0 ummæli við “Það er mögulegt e. Stan Apps”