Sem nemandi í grunnskóla lærði ég
að maðurinn væri eina skepnan
sem stundaði kynlíf sér til skemmtunar
og sú eina sem notaði verkfæri
(þó ekki endilega í tengslum við kynlíf).
Í dag skilst mér að allar skepnur ríði líka
just for the fuck of it
og maðurinn er sá eini sem notar verkfæri
til að búa til önnur verkfæri.
Heilar kynslóðir á undan mér skeggræddu
um hvernig verkfæri búa til stéttaskiptingu
Ég hef þó meiri áhuga á að vita hvernig
verkfæri breyta hugsun okkar.
Fyrir mörgum er raftónlist einhæf
raftónlistarmenn vinna í töflureiknum
hljóðin eru merkt inn í reiti sem smellpassa
upp á millisekúndu
Fara þeir að hugsa eins og verkfærin?
Eiga verkfærin hlut í sköpuninni?
Taktur:
| Bassatromma | X | - | X | - | - | - | - | X | - | X | - | X | - | - | - | X | |
| Snerill | - | X | - | - | X | - | - | - | - | - | - | - | X | - | - | - |
Ég hugleiddi þetta þegar ég hitti ljóðskáld
sem sat fyrir framan fartölvu með Word
og smellti á
enter bilstöng og tab
,,Hvað ertu að gera”
spur
ði ég
Í Word snúa allir stafirnir eins -
unnið er með stafi, orð, efnisgreinar og blaðsíður
orðarunurnar stefna alltaf í sömu átt -
til hægri
og niður blaðsíðuna.
Kannski
eiga öll ljóð að vera þannig og
Kannski
vilja ljóðskáld hugsa í stöfum,
efnisgreinum og blaðsíðum –
alltaf í sömu átt
til hægri
og niður blaðsíðuna.
Það ætti að vera gott
fyrir alla að hugleiða
hvernig verkfærin
eiga hlut í sköpuninni.
Ég sagði vini mínum að
teikna ljóðið upp með blýanti
hann starði á mig og spurði:

Jón Örn Loðmfjörð
Skrifað í Microsoft Word þann 26/11/2007. HTMLað 10/01/2008.
0 ummæli við “Verkfæri e. Jón Örn Loðmfjörð”