Fjórir létust og 15 særðust í sprengjuárás á mosku súnní-múslima í Bagdad. ESB heitir því að stuðla að auknum samskiptum austurs og vesturs í ljósi skopmyndadeilunnar. ESB veitir Palestínu tímabundinn fjárstyrk. Mexíkósk stjórnvöld frömdu þjóðarmorð á árunum 1964-1982 samkvæmt nýrri skýrslu. Þrjú lík afhent og 30 slösuðum hleypt út úr afgönsku fangelsi. Byssumaður í Detroit myrti konu í kirkju og særði tvo aðra áður en að hann tók eigið líf. Þjóðverjar neita því að þýskir njósnarar hafi útvegað Bandaríkjamönnum varnaráætlun Saddams. Pakistanskar konur mótmæla skopteikningum. Árlegur listi yfir 10 verstu einræðisherra heims birtur. Sprenging í hergagnaverksmiðu í Ísrael. Útgöngubanni í Írak aflétt. Ávísun Palestínumanna vegna bensínkaupa reyndist innistæðulaus. Lestarteinar sprengdir upp í Pakistan og lest fór af sporinu. Saddam hættur í hungurverkfalli.
Fangar halda fangelsisálmu enn í herkví. Þjóðverjar komu upplýsingum til Bandaríkjamanna fyrir innrásina í Írak. Mótmæladagur gegn skopmyndum um allt Pakistan í dag. Skotbardagi í úthverfi Riyadh.
Ekkert hefur spurst til Jill Carroll
Tugþúsundir komu saman í Frakklandi til að mótmæla kynþáttahatri.
16 létust og í það minnsta 40 særðust í sprengjuárásum í suðurhluta Bagdad. Átta létu lífið í árás uppreisnarmanna í Kólumbíu. Ástrali sakfelldur á grundvelli hryðjuverkalaga. Leiðtogi Hamas segir Abbas ekki hafa ástæðu til að segja af sér. Spennan eykst vegna neyðarástands á Filippseyjum. Leiðtogar í Írak segja að tekist hafi að draga úr átökum milli trúarhópa. Fangar hertóku fangelsisálmu í Afganistan. Þrír al-Qaedaliðar sem sluppu úr fangelsi gáfu sig fram. Skopteikningum mótmælt friðsamlega í Hong Kong. Hundruð mótmæla fyrir utan sendiráð Breta í Teheran. Fyrrum yfirmaður afgönsku leyniþjónustunnar dæmdur til dauða. Skotið úr rifflum til að dreifa úr æstum múg í Úganda.
Átök í miðborg Dyflinnar milli lýðveldissinna og lögreglu. 108 handteknir í 19 löndum í fjölþjóðlegri lögregluaðgerð gegn barnaklámi. Fimm létust og 25 særðust í bílsprengingu í Karbala.
Erindreki Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum ræddi við forseta Palestínu. Samningaviðræðum Rússa og Írana í kjarnorkumálum ekki lokið. Tveir létu lífið og fimm særðust í jarðarför íraskrar fréttakonu. Frakklandsforseti varar við hræðslu. Bush og Rice hvetja Íraka til þess að forðast borgarastríð. Abbas hvetur Ísraelsmenn til þess að sýna Hamas biðlund. Eldflaugum skotið á heilagt grafhýsi sjíta fyrir sunnan Bagdad. Rannsakað hvort nýtt fuglaflensutilvik í mönnum hafi komið upp í Írak. Sádi Arabar komu í veg fyrir árás á olíuvinnslustöð í landinu. Sendiherra Danmerkur aftur til Sýrlands. Þrír létust og níu kirkjur voru brenndar í miðri Nígeríu í dag. Finnskur ritstjóri rekinn eftir birtingu skopmynda af Múhameð spámanni. Sprenging við olíuvinnslustöð í Sádi Arabíu. Forsætisráðherra Taílands leysir upp þingið. Leiðtogar sjíta í Íran hvetja íraska trúbræður sína til þess að halda ró sinni.
Fjölmargir tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels
Sendinefnd frá Hamas-samtökunum fer til Rússlands. Milosevic neitað um tímabundna lausn úr fangelsi. Staðfest að vélar CIA hafa lent í Kanada í 74 skipti. Útgöngubann í Bagdad og þremur öðrum umdæmum í Írak. Hvíta húsið viðurkennir mistök varðandi viðbrögð við fellibylnum Katrínu. Lögmenn Saddams vilja að núverandi dómara í máli hans verði vísað frá.
Embættismenn segja Írana vilja deila leynilegum kjarnorkuupplýsingum með IAEA. Vopnaðir ræningjar komust á brott með um þrjá milljarða kr. á Englandi. Átta deila með sér 25 milljarða kr. lottóvinningi í Bandaríkjunum. Sjítar réðust á tugi moska súnní-múslíma í Írak. Kofi Annan lýsir yfir hneykslun vegna árásanna á moskur í Írak í dag. Bandaríkjastjórn fordæmdi sprenginguna í musteri sjíta í Samarrah. Ráðist á moskur súnni-múslima í Bagdad. Engin ólga hér á landi vegna skopmyndamálsins. Bílsprengja varð 21 manni að bana í Bagdad. Friðargæsluliðar NATO hætt komnir í Afganistan. Leikarar úr sjónvarpsmynd um Guántanamo-fangelsið yfirheyrðir. Bandaríkjaher sagður hafa myrt 34 fanga í Afganistan og Írak. Uppnám meðal sjíta í Írak vegna árásar á helgidóm. Tveir drengir létust og fjögur skólabörn slösuðust í sprengjutilræði í Írak.
Börn í Nýju-Delí krefjast menntunar. Utanríkisráðherra Bretlands fordæmdi sprengjuárásir í Bagdad. Ræðismannsskrifstofa Dana í Túnis hefur opnað á ný.
Samtök íslamskra ríkja fordæma ofbeldisverk tengdum skopmyndadeilunni. Eldflaugum skotið á tvær breskar herstöðvar í suðurhluta Íraks. Rice mun hvetja Arabaríki til þess að þrýsta á Hamas. Þrýst á Bush að koma í veg fyrir hafnarsamninga. Mahmoud Abbas útnefnir leiðtoga Hamas sem næsta forsætisráðherra Palestínu.
Sendiherra Danmerkur á leið til Jakarta á ný. 22 létust og 28 særðust í sprengjuárás í Írak. Bretar falla fyrir bandarískum vínum. Ísraelskir hermenn særðu þrjá Palestínumenn í Balata-flóttamannabúðunum. 16 Pakistanar tengdir al-Qaeda dæmdir til dauða. Allt gert til að tryggja öryggi skopmyndateiknara. Viðræðum Írana og Rússa um kjarnorkumál lokið. Tíu ungverskir hellafræðingar fastir í helli á Ítalíu. Útgáfa sádí-arabísks dagblaðs stöðvuð vegna birtingar á skopmyndum.
Bush hvetur til þess að ný kjarnorkuver verði byggð fyrir 2010. Alls hafa 24 látist í átökum í Nígeríu vegna skopmynda af Múhameð. Bin Laden segir Bandaríkjamenn í Írak engu betri en Saddam. Utanríkisráðherra Bretlands í óvæntri Íraksheimsókn. Hamas-samtökin útnefna Ismail Haniyeh sem forsætisráðherraefni sitt. Íransstjórn bannar opinberum stofnunum að kaupa innfluttar vörur. Vilja að þáttur danskra stjórnvalda í skopmyndamáli verði rannsakaður.
Páfi segist styðja við friðsöm mótmæli vegna teikninga af Múhameð spámanni. Tveimur makedónskum gíslum sleppt í Írak. Badawi hvetur til viðræðna vegna skopmyndadeilunnar. Hundruð mótmælenda skopmynda af Múhameð handtekin í Pakistan. Irving segist ekki afneita helförinni lengur. Forseti Venesúela sendir utanríkisráðherra Bandaríkjanna fingurkoss. Átta létust og að minnsta kosti 19 særðust í tilræðum í Írak. Forsætisráðherra Palestínu segir aðgerðir Ísraela litlu skipta. Tveir palestínskir unglingar skotnir á Vesturbakkanum.
Peningaflutningabíl rænt í Kabúl
40% breskra múslíma styðja sharia-lög. Olmert sagði heimastjórn Palestínu í höndum hryðjuverkamanna. Sendiherra Dana í Sýrlandi farinn úr landi af öryggisástæðum.
Danir kalla sendiherra sinn heim frá Pakistan. Ráðist á sendiráð Bandaríkjamanna í Indónesíu. Bresk flugmálayfirvöld viðurkenna að fangaflugvélar CIA lentu í Bretlandi. Tveir herskáir Palestínumenn féllu í loftskeytaárás Ísraela. Írakar báðu Dana um að vera lengur í Írak.
Múslímar mótmæltu dönsku skopteikningunum í New York. Tveir bræður ákærðir fyrir sprengjuhótun. Utanríkisráðherra Danmerkur segir mótmælin gegn Dönum m.a. sök Egypta. 10.000 múslímar mótmæltu skopteikningum af Múhameð spámanni í Lundúnum. Umbótamálaráðherra Ítalíu sagði af sér vegna skopteikninga af Múhameð. Palestínska þingið sett í dag. Tveimur mönnum frá Makedóníu rænt í Írak. Abbas bað Hamas-samtökin um að flýta fyrir myndun heimastjórnar. Skopteikningum af Múhameð spámanni mótmælt í Lundúnum. Bush væntir þess að SÞ og NATO taki við friðargæslu í Darfur. Rumsfeld: Annan hefur hreinlega rangt fyrir sér. Bandaríkjamenn fjármagna stjórnarandstöðuna í Sýrlandi. Múslímar í Tansaníu mótmæla birtingu á skopmyndum af Múhameð. Sendiráði Danmerkur í Pakistan lokað. Múslimaklerkur setur fé og bifreið til höfuðs skopmyndateiknara. Fyrirhugaðar viðskipta- og ferðahömlur á Palestínumenn gagnrýndar.
Danskir skúrkar í nýju Bondmyndinni
Nýjar myndir af misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib. Fjöldi dauðra svana finnast í Danmörku. Ísraelsher skaut 15 ára þroskaheftan dreng til bana. Segir skopmyndadeiluna versta utanríkisvanda Dana síðan 1945.
1. Telur líklegt að Hamassamtökin hætti vopnaðri baráttu gegn Ísrael.
2. Samgönguráðherra Bandaríkjanna gagnrýndi Britney Spears harðlega..
3. Saddam Hussein segist vera í hungurverkfalli.
4. Forsætisráðherra Dana mun funda með samtökum hófsamra múslíma í dag.
5. Silvio Berlusconi líkti sjálfum sér við Jesú Krist..
6. Stjórnvöld í Indónesíu harma brotthvarf danska sendiherrans.
7. Meintur hryðjuverkamaður gómaður af bandarísku alríkislögreglunni.
8. Hófsamir múslímar á Bretlandi mótmæla viðbrögðum öfgasinna.
9. Sendiherrar Dana í Íran og á Indónesíu farnir vegna hótana.
Múslímar efna til fjöldafunda í Evrópu vegna skopmynda. Íranskur klerkur hrósaði múslímum fyrir heilagt stríð. Egypska lögreglan beitir gúmmíkúlum og táragasi á skopmyndamótmælendur.
Skopteikningunum af Múhameð mótmælt harðlega í Kenýa. Ljósmynd af sveltandi móður og barni fékk aðalverðlaun World Press Photo. Pakistanskir mótmælendur brenna danskan ost. Vilja að birting skopmyndanna verði bönnuð með lögum í Bretlandi. Konur brenna valentínusarkort á Indlandi. Um 2.000 mótmæltu skopmyndum í Malasíu.
Varnarmálaráðherrar funda vegna skopteikninga. Mótmælaaðgerðir gegn Dönum á Filippseyjum og Indónesíu. Óttast að Svíþjóð dragist inn í skopmyndadeiluna. Teikningar af Múhameð birtust í egypsku blaði í fyrra. Meirihluti Norðmanna telur að rangt hafi verið að birta myndir af Múhameð. Menningarritstjóri Jyllands-Posten sendur í frí. Öryggi hert við sendiráð Dana í Moskvu. Undrast áframhaldandi birtingu skopteikninga.
Ritstjóri Magazinet ákærður fyrir að birta skopteikningar af Múhameð. Bush segir að komið hafi verið í veg fyrir hryðjuverkaárás á Los Angeles. Áróður fyrir dönskum vörum á netinu. Jyllands-Posten hafnaði skopteikningum af Jesú af ótta við að móðga lesendur. Íslendingur handtekinn fyrir að fróa sér í Kaupmannahöfn. Bush hringdi í Anders Fogh Rasmussen. Söngleikur um Margaret Thatcher frumsýndur í haust. Fjórir létu lífið í mótmælaaðgerðum í Afganistan. Árás gerð á danska sendiráðið í Íran. Íran: Hyggjast skopast að helförinni. Bush óskaði eftir útgjaldahækkun til hermála. Sterling hættir flugi til Egyptalands. Íransstjórn setur viðskiptabann á Danmörku. Skopmyndir: ESB ríki hvött til að taka í taumana. Fjölmenn mótmæli gegn skopteikningum í Írak. Jerúsalempósturinn birtir skopmyndirnar af Múhameð spámanni.
Ritstjóri lést af völdum lögregluofbeldis. Einn lést í óeirðum í Afganistan vegna skopmyndanna af Múhameð. Bresk dagblöð segja að breski herinn muni hefja að draga herlið sitt frá Írak. Æðsti klerkur sjíta í Írak mótmælir teikningum en hvetur ekki til aðgerða.
Skopmyndateiknararnir höfðu efasemdir varðandi birtingu myndanna. Fylgi Danska þjóðarflokksins eykst. Múslímar hvetja til mótmæla í dag vegna teikninga af Múhameð. Anders Fogh boðar til fundar með erlendum sendiherrum. Vörur Arla í Miðausturlöndum komnar á ný í hillur verslana. Óvíst hvort Saddam Hussein verði viðstaddur réttarhöldin í dag. Ritstjóri France Soir rekinn í gær. Danskur þingmaður áframsendi SMS sem hvatti til aðgerða gegn dönskum múslimum. Mælir með smíði mosku.
Skattstjóri Bandaríkjanna er með sérstaka tölvu fyrir Bill Gates
Franskt dagblað birti skopteikningar af ýmsum spámönnum. Bush hét því að bregðast við yfirvofandi hættum. Íslamskir öfgamenn hvetja til aðgerða gegn Dönum og Norðmönnum. Fogh Rasmussen ræðir við leiðtoga ESB um teikningar af Múhameð. Palestínskir byssumenn mótmæla dönskum skopteikningum. Hvatti til að fjárstuðningi við nýja heimastjórn Palestínu verði hætt. Krefjast afsagnar Abbas. Maður ákærður í tengslum við misheppnaðar sprengjuárásir í London. Bush: Sigur Hamas áminning um mátt lýðræðisins. Leiðtogi Hamas segir samtökin reiðubúin að framlengja vopnahlé.
Frambjóðandi Hamas segir skotvopn og lýðræði vel geta farið saman. Samtök eftirlifenda þjóðarmorðanna í Rúanda kæra blaðamann.
Donald Trump kærir höfund sem dregur í efa ríkidæmi hans.
Eiríkur Örn Norðdahl
Valdar fyrirsagnar af mbl.is frá kl. 15.20 24. janúar, 2006, til 21.44 þann 20. febrúar sama ár.
Ljóðið birtist áður, í lítið breyttri mynd, í bókinni Íslam með afslætti, sem kom út hjá Nýhil fyrir skemmstu. Hana er m.a. hægt að kaupa á vef Bóksölu stúdenta með því að smella hér.
0 ummæli við “Af skopi e. Eirík Örn Norðdahl”