Fréttatilkynning: Af steypu

Til stendur að gefa út bókina Af steypu hjá Nýhil, sem kemur út í Afbókaseríunni. Bókinni Af steypu er ætlað að fjalla um efnisleika ljóðlistarinnar í samtímanum, á víðum grunni, til dæmis konkret-ljóðlist, myndljóðlist, hljóðljóðlist, og ljóðlist sem notast við „fundið tungumál“, eða „afmyndað tungumál“, og sértæka aðferðafræði eða hömlur við skriftir. Leita ritstjórar að þýðingum á slíkum ljóðum - bæði hefðbundnum og róttækum (t.d. hómófónískum eða aðferðafræðilegum) - sem og frumsömdu efni af slíkum toga. Þá er einnig leitað að frumsömdum og þýddum greinum, um afmarkað efni eða almennt, innan þema, og tillögum að birtingu ljóða á frummáli (t.d. myndljóða). Hafi einhver áhuga á að leggja hönd á plóg með þýðingar, er rétt að hafa samband við ritstjórana, Eirík Örn Norðdahl og/eða Kára Pál Óskarsson, og annað hvort benda á greinar/verk sem þið mynduð vilja þýða, eða spyrja hvaða greinar/verk bíða þýðingar, en þegar er búið að velja nokkuð af erlendum greinum og verkum til birtingar. Kári Páll Óskarsson (kpo@hi.is) og Eiríkur Örn Norðdahl (kolbrunarskald@gmail.com)

0 ummæli við “Fréttatilkynning: Af steypu”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni