Jónína Leósdóttir hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör

Jónína Leósdóttir rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Miðbæjarmynd“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Jónína Leósdóttir er sjötti handhafi verðlaunanna frá stofnun samkeppninnar árið 2002. Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, að kvöldi afmælisdags Jóns úr Vör, 21. janúar.

„Jónína Leósdóttir er líklega þekktust sem leikskáld en auk leikrita hefur hún gefið út skáldsögur, ævisögur og þýðingar,“ sagði Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfundur og formaður dómefndarinnar. „Hún hefur einnig starfað sem blaðamaður og ritstjóri en ég minnist þess ekki að hafa séð ljóð eftir hana áður þótt ég hafi hana sterklega grunaða um að luma á fleiri slíkum, að minnsta kosti er enginn byrjendabragur á ljóðinu sem við verðlaunuðum í kvöld, Miðbæjarmynd.“

Sérstakar viðurkenningar hlutu einnig Helgi Ingólfsson rithöfundur fyrir ljóðið „Menn hlæja bara að þeim“ og Davíð Hjálmar Haraldsson ljóðskáld fyrir „Hann blæs“.

Dómnefnd skipuðu auk Ingibjargar Haraldsdóttur Sigþrúður Gunnarsdóttir bókmenntafræðingur og Þórarinn Eldjárn skáld. Dómnefndin komst að einróma niðurstöðu.

Þetta er í sjöunda sinn sem lista- og menningarráð Kópavogs stendur fyrir ljóðasamkeppni þessari, en hugmyndin er upphaflega komin frá félögum úr Ritlistarhópi Kópavogs. Að þessu sinni bárust 257 ljóð í keppnina. Sigurvegarinn fær 500 þúsund króna peningaverðlaun og verðlaunagripinn, Ljóðstaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu til varðveislu í eitt ár auk eignargrips sem Sigmar Maríusson gullsmiður hannaði. Höfundar hinna ljóðanna tveggja fá hvor um sig 150 þúsund króna verðlaun.

(Frétt af mbl.is)

0 ummæli við “Jónína Leósdóttir hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni