Færslusafn fyrir February 2008

The Lovesong of J. Alfred Prufrock e. T.S. Eliot

Myndgjörving: Everett Wilson.

Lestur & ljóð: T.S. Eliot

Ljóðleikar

Ljóðleikar

4 ljóð e. Gunnar Má Gunnarsson

( dauðinn )

að fæðast er hin endanlega/ eða þyngsta vissa

en um dauðann (?) sú staðreynd hlýtur alltaf
að vera bundin efa

Að drekka kók með þér e. Frank O’Hara

er jafnvel enn skemmtilegra en að fara til San Sebastían, Irún, Hendaye, Biarritz, Bayonne
eða verða flökurt á Travesera de Gracia í Barcelona
að hluta til vegna þess að í appelsínugulu skyrtunni þinni ertu eins og betri glaðari sankti Sebastian
að hluta til vegna þess að ég elska þig, að hluta til vegna þess að þú elskar jógúrt
að hluta til vegna flúrljómandi appelsínugulu túlípananna í kringum birkitrén
að hluta til vegna pukursins sem skreytir varir okkar frammi fyrir fólki og höggmyndum
það er erfitt að trúa því þegar ég er með þér að nokkuð geti verið jafn hreyfingarlaust

Sorg


Þetta ljóð Garðbæska Selfossskáldsins Danna Kalla fann Jón Örn Loðmfjörð hérna.

Garðskálinn - 1. þáttur annarrar seríu

Gífurlegar vinsældir bókmenntaþáttarins Garðskálans hafa væntanlega ekki farið framhjá æstum aðdáendum íslenskra bókmennta - með sín skínandi fögru augu - en fyrsta sería þáttaraðarinnar var jafnvel enn æsilegri en hún var beint-í-mark, og er þá tekið djúpt í öllum árum. Leiftrandi gáfnafari tvímenninganna Loðmfjörð og Vídalín  er ekki líkjandi við neitt - nema þá kannski allra uppljómuðustu augnablik hins apostrófíska Bernarnds Pivot. Eftir miklar - langar, strangar og þröngar - samningaviðræður hafa Tíu þúsund tregawött fest kaup á sýningarréttinum á annarri seríu þessarar mögnuðu þáttaraðar. Í þessum fyrsta þætti seríunnar er rætt við rithöfundinn Hauk Má Helgason um bók sem enginn veit hver skrifaði.

Frekari upplýsingar um Garðskálann má nálgast hér.

Konur eru … e. Bryndísi Björgvinsdóttur

Maður A: Konur eru…
Maður B: Bíddu…ha??
Maður A: Konur eru…
Maður B: Ég skil ekki! Konur? Hvernig? Hvað? Hvert?

Þetta voru góðar spurningar.
Við skulum líta á nokkur svör.