er jafnvel enn skemmtilegra en að fara til San Sebastían, Irún, Hendaye, Biarritz, Bayonne
eða verða flökurt á Travesera de Gracia í Barcelona
að hluta til vegna þess að í appelsínugulu skyrtunni þinni ertu eins og betri glaðari sankti Sebastian
að hluta til vegna þess að ég elska þig, að hluta til vegna þess að þú elskar jógúrt
að hluta til vegna flúrljómandi appelsínugulu túlípananna í kringum birkitrén
að hluta til vegna pukursins sem skreytir varir okkar frammi fyrir fólki og höggmyndum
það er erfitt að trúa því þegar ég er með þér að nokkuð geti verið jafn hreyfingarlaust
jafn andaktugt jafn óþægilega endanlegt og höggmynd þegar beint fyrir framan hana
í hlýju ljósi New York klukkan fjögur síðdegis okkur rekur fram og aftur
á milli hvors annars eins og tré sem andar um gleraugun sín
og portrettsýningin virðist ekki innihalda nein andlit, bara málningu
þú veltir því skyndilega fyrir þér hvers vegna í ósköpunum þau voru gerð
……………………………………………………………………………………………..ég horfi
á þig og ég vildi heldur horfa á þig en öll portrett í heiminum
fyrir utan kannski Pólska reiðmanninn en hvað um það, það er á Frick-safninu
sem guði sé lof þú hefur ekki heimsótt enn svo við getum farið þangað saman í fyrsta skipti
og það að þú skulir hreyfa þig svona fallega afgreiðir í raun Fútúrismann
rétt eins og heima hjá mér hugsa ég aldrei um Nakin niður tröppur eða
á æfingu um stakar teikningar Leónardós eða Mikaelangelós sem trylltu mig einu sinni
og hvaða gagn er í öllum rannsóknum Impressíónistana
þegar þeir fengu aldrei réttu manneskjuna til að standa við tréð meðan sólin settist
eða þess vegna Marino Marini þegar hann valdi ekki reiðmanninn jafn gaumgæfilega
og hrossið
………………svo virðist sem þeir hafi allir misst af einhverri stórkostlegri reynslu
sem verður ekki sóað á mig og þess vegna er ég að segja þér frá henni
Frank O’Hara
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl
0 ummæli við “Að drekka kók með þér e. Frank O’Hara”