Ljóð eftir Michel Houellebecq

Þú talaðir um kynferði, um mannleg tengsl. Talaðir þú raunverulega um eitthvað? Við vorum umvafin skarkala; orð virtust koma út úr munni þínum. Lestin fór inn í göng. Með lítils háttar snarki, lítils háttar bið, kviknaði á lömpunum í íbúðinni. Ég hataði krumpaða pilsið þitt og farðann þinn. Þú varst leiðinleg eins og lífið.

Michel Houellebecq er franskur rithöfundur og ljóðskáld, fæddur 1958. Ljóðið er úr bókinni La Poursuite du bonheur frá 1992.

Kári Páll Óskarsson þýddi.

0 ummæli við “Ljóð eftir Michel Houellebecq”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni