Ljóð fyrir þrítuga

Ljóðið fann Ásgeir H Ingólfson á húsvegg í Ljubljana.
Bandaríska ljóðskáldið Aram Saroyan hlaut á dögunum hin bandarísku William Carlos Williams ljóðabókaverðlaun fyrir safnritið Complete Minimal Poems . Í dómi sínum um bókina sagði skáldið Ron Silliman m.a. „Reading Complete Minimal Poems, we are struck by just how sturdy these poems have proven to be and just how brightly Saroyan’s sense of humor shines through these pages. These poems are works of great optimism, and are as radical and strong in 2008 as the day they were written.“
Hægt er að nálgast ljóð Arams Saroyan á ensku á UbuWeb
Smellið á „Lesa nánar“ til að „Lesa nánar“.
Sundhöllin stendur sveipuð í myrkri,
ávaxtatrén böðuð í ljósi.
Fallnir ávextir sem mareldur í klór,
og lykt sem flögrar og klístrar.
En það ætti að vera venjuleg
vornótt með mánaskini! Og þú
ættir að koma upp á yfirborðið,
rétta af sundhettuna, hrista
af þér moldina.
ég trúi ekki á guð
ég ætla bara að skrifa um það seinna
sko um guð
En ég trúi á hann!
nei ég trúi ekki á guð
og sé eiginlega eftir
að hafa fermt mig
Ég trúi á Travolta!
Þau flytja allan himinblámann, tuskusveipaðan í tágakoffortum sínum
Fram og aftur-ferðir drauma þeirra.
Og þykk ullarsængin, úttroðin eins og ský sem úr mun rigna
Kringlóttur magi konunnar bifast.
Jörðin snýst lítið eitt í augum þeirra.
Þau segja ekki neitt, fara hvergi
Þau setjast eða standa upprétt á horni götunnar, þrýsta sér hvert upp að öðru
Þýðandi: Kári Páll Óskarsson
trúa, trúði, trúður trú-ir-(ði)
æstur lítill krakki
vill afklæða jólasveininn úr nærbrókunum, klippa á teygjuna á skegginu
vill hlæja framan í lygina
eltir Sveinka
Hugsa sér það innan hliðs sem opið opnast á þeirri stundu er lokast sumar það er svo að segja.
Öll sætin þarfnast svertunar. Hvítur kjóll er í tákni. Dáti sannur dáti er með trosnaðar blúndur trosnaðar blúndur af ólíkum stærðum það er að segja ef hann kann að lesa, ef hann kann að lesa er hann af stærð til sýnis lokar sig af tuttugu-og-fjórar.
Þegar kynntumst
Þegar kynntumst
vissum ekki að höfðum
búið í sömu blokkinni
í sama stigagangi
og kannski á sama tíma
kannski sá ég oft bílinn þinn
áður en ég varð stundum farþegi í honum
hlustuðum bæði á konuna
á fyrstu hæðinni
spila á píanóið