Tvö ljóð e. Gísla Þór Ólafsson

Þegar kynntumst

Þegar kynntumst
vissum ekki að höfðum
búið í sömu blokkinni
í sama stigagangi
og kannski á sama tíma

kannski sá ég oft bílinn þinn
áður en ég varð stundum farþegi í honum

hlustuðum bæði á konuna
á fyrstu hæðinni
spila á píanóið

það var notalegt
meðan lært var

vissum ekki af hvort öðru

Alveg óþolandi á msn

Fyrir henni er ég bara leiðinlegur
alltaf á msn að tala um skáldskap
og glitrandi gítarstrengi
og tilfinningamál eins og kelling
algjörlega óskiljanlegur

fyrir henni er ég bara leiðinlegur
alveg óþolandi á msn

Gísli Þór Ólafsson

Ljóðin eru úr nýútkominni ljóðabók sem nefnist Ég bið að heilsa þér.

0 ummæli við “Tvö ljóð e. Gísla Þór Ólafsson”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni