trúa, trúði, trúður trú-ir-(ði)
æstur lítill krakki
vill afklæða jólasveininn úr nærbrókunum, klippa á teygjuna á skegginu
vill hlæja framan í lygina
eltir Sveinka
eitrar fyrir Jesú
spilar bingó á föstudaginn langa
hringir í lögguna og segir: „maría meig á sig,
hún er ekki lengur hrein mey“.
Súrkúla Aragrúadóttir
Bravó, bravó, bravissimo.