3 ljóð úr nýrri bók eftir Sólveigu Maríu Svavarsdóttur

Farvegur

Litla stelpan
í gula kjólnum
með
hvolpinn.

Litla stelpan
með tárvota
hvarma.

Litla stelpan
í stutta
pilsinu.

Unga konan
í ósamstæðum
skónum.

Um hann I

Ár eftir ár
stendur
hann á
brúninni

veðurbarinn
og klæðlaus

hann fellur brátt.

Leit

Ég leitaði undir sófa
leitaði út í bíl
skimaði í kringum mig út í búð
fór ofskreytt og upptendruð á djammið

en svo hætti ég að leita
fékk mér vatnsglas og settist í sófann

og þá komst þú.

Sólveig María Svavarsdóttir.

Úr nýrri bók, Hvernig getur þú sofið?

0 ummæli við “3 ljóð úr nýrri bók eftir Sólveigu Maríu Svavarsdóttur”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni