Haglabyssa e. Rebeccu O’Connor

Þau geymdu hana inni á baðherbergi,
hangandi fyrir ofan sápuskálina.
Byssuskeftið einsamalt dugði
til að mölva hvolpshöfuð;
á tíkurnar nægði eitt einasta skot.
Hann tók hana niður, dró út pinnann,
hlóð og spennti gikkinn,
ýtti aftur ímyndaðri derhúfunni,
beindi byssunni að refnum,
brenndi af gegnum fjóra veggi -
yfir rúm systur sinnar, gegnum jesúmyndina,
stól föður síns, gafl vöggunnar
og á kaf í börk trésins.
Rebbi var dauður.
Og höggið fleygði honum utan í vaskinn,
braut úr honum fyrstu barnatönnina.

Rebecca O’Connor

Þýðing: Sjón

Rebecca O’Connor er írskt ljóðskáld sem 2003 hlaut Geoffrey Dearmer verðlaunin fyrir ljóð sitt “A Bag of Tangerines” og hefur verið tilnefnd til New Writing Ventures verðlaunanna. Árið 2005 var hún staðarskáld Wordsworth sjóðsins og af því tilefni kom út fyrsta bók hennar Poems. Ljóðið Haglabyssa er úr þeirri bók. Rebecca starfar sem aðalritstjóri Telegram Books í London.

0 ummæli við “Haglabyssa e. Rebeccu O’Connor”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni