Stefnur e. Bjarna Bernharð

Tíminn er ekki liðinn
fyrr en veraldarskeiðið
er á enda runnið.

Munu fyrri stefnur
úr mannlífsflórunni
vakna til lífsins
og upp hefja að nýju
lífsins ádrepu.

Í krafti orðsins
eða hvers sköpunarmáttar
opna vitund þjóðar
draga dár
að tíðarandanum
og hvetja til uppreisnar
í mannvitsbrekkunni.

Bjarni Bernharður

0 ummæli við “Stefnur e. Bjarna Bernharð”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni