Ch 16 og Ch 17 e. Sindra Frey Steinsson

Ch 16

Flauelsormurinn er silkimjúkur að utan, fallegt flauelsskinnið sem hann dregur nafn sitt af er mjúkt viðkomu og hann er undrafagur ásýndum. Flauelsormurinn lokkar til sín skordýr sem þrá ekkert heitara en mökun á fengitímanum. Þetta slungna kvikindi læsir svo oddhvössum vígtönnum sínum djúpt í æxlunarfæri fórnarlambsins og sýgur allt sæðið burt. Í stað sæðisins spýtir flauelsormurinn banvænu eitri í sárin sem sýkir dýrin miskunarlaust. Í snýkjudýrinu 1. Agapanthus rientalis/umbellatus breiðist eitrið út í meltingarveginn og í örverur í meltingarveginum. Þegar Agapanthus ræðst svo á dýr þar á meðal Homo Sapiens dreifast þessar örverur um blóðrásina og valda ástandi eða heilkenni sem nefnt hefur verið Adonis röskun, en er oft ruglað saman við ofsóknarbrjálæði. Þekkt hliðarverkun ástandsins er svokölluð ormapíka. Í vægari sýktum píkum eru aðeins litlir ormar sem skríða inn í sáðrás og búa vel um sig þar áður en næsta sýkingartækifæri gefst. Aðrir ormar skríða undir forhúðina og nærast á typpaosti (e.smegma)

Áhrif sjúkdómsins eru einna helst sú að fólk sem og spendýr eiga það til að festa sig tryggilega við annan einstakling af sömu tegund. Mökun virðist vera títt hliðareinkenni þó að hún sé að mestu órannsökuð, en einnig kemur stöku nauðgun fyrir. Þessi sjúkdómur/heilkenni/ástand smitast einna helst við mökun og er því í flokki kynsjúkdóma þó svo að hann smitist líka oft við náin samskipti sem og augngotur. Þí allra verstu tilfellum leiðir sjúkdóurinn til sjálfsmorðs vegna brennandi óslökkvandi þrár sem sjúkdómurinn orsakar. Vægari tilfelli enda með lögfestri heimild til pörunar. Í daglegu tali gengur sjúkdómurinn undir hinu saklausa, en banvæna nafni, „ást“.

Ch 17

Þvagfæralæknirinn dansar á skurðstofunni hann er með kúluhatt og staf og dansar steppdans. Hann grípur míkrófóninn og hendir honum í loft upp. „Ryksugan“ grípur míkrófóninn og setur upp yfirvaraskegg og klæðir sig í karlmannsföt:

„Ég framkvæmi fjöldafóstureyðingu á hverjum degi

þó svo að biflían hún segi að það ekki megi

Sindri Freyr Steinsson

Ljóðin eru úr nýrri bók Sindra, Hor, en hana má nálgast með því að senda höfundinum tölvupóst á netfangið radarbib@hotmail.com.

0 ummæli við “Ch 16 og Ch 17 e. Sindra Frey Steinsson”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni