
Dagarnir eru sundlaugabláir
& þarna hátt uppi
á bringusundi
mynstra fljúgandi
hvítir sæhestar
óráðanlega krossgátu
ég sé þá stíma
á hvern annan
heljarstór vængur
hrapar niður
gegnum þakið
havæskyrtum rignir
yfir akurinn
þarna hátt uppi
ofan við mig
heilu hóparnir
af fólki með metnað
að fara eitthvað
troðandi marvaðann
þarna uppi
heilu hóparnir
að fara eitthvað
að fara bara eitthvað.
Áður birt í Bókinni Provence í endursýningu, (Apaflasa 2008) og safnritinu Gáttir/Gateways (Nýhil 2008).




