Smellið á ’spila’.
Ljóðið er unnið úr andardrætti og orðum Sigfúsar Daðasonar. Haukur Már Helgason er meðal þeirra sem koma munu fram á ljóðahátíð Nýhils undir lok næsta mánaðar.
Smellið á ’spila’.
Ljóðið er unnið úr andardrætti og orðum Sigfúsar Daðasonar. Haukur Már Helgason er meðal þeirra sem koma munu fram á ljóðahátíð Nýhils undir lok næsta mánaðar.
Sex erlend skáld og tólf íslensk lesa í ljóðapartíum á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins og taka þátt í umræðum með Birnu Bjarnadóttur og Ármanni Jakobssyni í Norræna húsinu á Fjórðu alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils. Glæsilegt þýðingarit verður gefið út samhliða hátíðinni, sem fer fram 22.-24. ágúst næstkomandi.
Fjórða alþjóðlega Ljóðahátíð Nýhils verður haldin hátíðleg dagana 22.-24. ágúst í Norræna húsinu og á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Dagskrá hátíðarinnar er með eindæmum metnaðarfull, en sex erlend skáld koma sérstaklega til landsins í tilefni hennar. Þau munu lesa upp á ljóðapartíum og taka þátt í pallborðsumræðum með íslenskum kollegum sínum.
Finnska ljóðskáldið Vilja-Tuulia Huotarinen les upp á ljóðahátíð Nýhils.
Arngrímur Vídalín flytur ljóð sitt Undankoma endurkvæmni á 3ju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils. Svo útskýrir skáldið ljóð sitt:
„Endurkvæmni er meðal mikilvægari algilda í málfræði. Samkvæmt endurkvæmni geta setningar leitt af sér óendanlegt magn tilvísunarsetninga. Til dæmis geturðu tekið setningar eins og „Sigga sá bílinn“ og „bíllinn brunaði“ og skrifað „Sigga sá bílinn sem brunaði“.
Finnska ljóðskáldið Markku Paasonen les ljóð um höfuð skáldsins á 3ju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils.
Örvar Þóreyjarson Smárason les á 3ju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils, í Þjóðleikhúskjallaranum 13. október 2007.
Gísli Hvanndal á 3ju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils.
Myndbandsljóð eftir Jón Örn Loðmfjörð sem sýna átti á 3ju alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils 2007, en misfórst vegna tæknivandamála.
Kæru lesendur, nú eru síðustu mínúturnar til að taka sig saman í andlitinu, korter í ljóðahátíð og veröldin skelfur. Hér að neðan má sjá dagskrá hátíðarinnar og lesa sér til um hverjir taka þátt. Alls eru viðburðirnir fimm - tvö ljóðapartí í Þjóðleikhúskjallaranum, upplestrarveisla á Súfistanum og tvær panel-umræður í Norræna húsinu.
3JA ALÞJÓÐLEGA LJÓÐAHÁTÍÐ NÝHILS
LJÓÐAPARTÍ #1 - föstudaginn 12. október - Þjóðleikhúskjallaranum 20:30
Kynnir: Ásmundur Ásmundsson